Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

The Streets koma á Iceland Airwaves

Read Full Article →

Í dag tilkynntu aðstandendur Iceland Airwaves fyrstu flytjendurna sem munu gleðja tónleikagesti á hátíðinni sem haldin er dagana 5.-7. nóvember víða um miðbæ Reykjavíkur. Ár hvert fyllist borgin af lífi og tónlist út í hvern krók og kima þar sem upprennandi íslenskir listamenn og alþjóðlegar stórstjörnur koma fram og leika listir sínar. Hátíðina sækja tónlistarunnendur sem ráfa um tónleikastaði í leit að næstu stjörnum íslensks tónlistarlífs eða til að horfa á sitt uppáhaldsatriði. Á hátíðinni verða sérstakir viðburðir og má þar nefna að Daði Freyr heldur tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu þann 5. nóvember og breska tónlistarkonan Shygirl kemur fram í Silfurbergi 4. nóvember. Þá kemur stórsveitin The Streets til landsins og heldur tónleika í Eldoborgarsal Hörpu 8. nóvember og kemur til með að flytja verkið A Grand Don’t Come for Free í heild sinni í fyrsta sinn. 28 listamenn frá Íslandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Kósovó, Írlandi, Þýskalandi, Færeyjum, Filippseyjum, Serbíu, Kanada, Póllandi og Danmörku eru á listanum. Hátíðin hefur lagt sig fram við að bóka flytjendur í jöfnum kynjahlutföllum síðan 2019.

Share this article