Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fimmtánda verkfallið í kjaradeilu breskra unglækna

Read Full Article →

Sex daga verkfall breskra unglækna hófst snemma í morgun. Þetta er í 15. sinn sem unglæknar fara í verkfall í langvarandi kjaradeilu við breska ríkið. Viðræður runnu í sandinn í mars. Búist er við því að þjónusta skerðist töluvert. Áhersla verður lögð á að tryggja bráðaþjónustu og því er búist við því að fresta þurfi fjölda skurðaðgerða og læknatíma. Heilbrigðisráðherra Bretlands, Wes Stretting, sagði breska ríkisútvarpinu í morgun að raskanir hingað til væru minni háttar. Ríkið segir kostnað nema milljörðum Bresk stjórnvöld segja að kostnaður ríkisins vegna verkfalla lækna sé um 50 milljónir punda á dag. Það jafngildir um 3 milljörðum punda síðan deilan hófst í mars 2023, jafnvirði nærri 500 milljarða íslenskra króna. Stretting segir að unglæknar séu sigurvegarar á opinberum markaði hvað varðar launahækkanir. Laun þeirra hafa verið hækkuð um 33% síðustu 4 ár. Afstaða þeirra er hins vegar sú að laun þeirra séu um fimmtungi lægri en fyrir 18 árum með tilliti til verðbólgu. jafnvirði nærri fimm hundruð milljarða íslenskra króna.

Share this article