Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Leita manneskju vegna gruns um rán og líkamsárás Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Lögregla leitar manneskju vegna gruns um rán og líkamsárás í heimahúsi í Hafnarfirði í gærkvöldi. Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að einn hafi fengið skurð á höfuð. Einhverju hafi verið stolið en rannsókn lögreglu sé á frumstigi. Hafnarfjörður. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 10 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Ferðalag kvennalandsliðsins til Færeyja gengur erfiðlega Einar Örn Jónsson Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Færeyjum í mikilvægum leik í undankeppni EM 2026 á miðvikudag. Erfiðlega hefur þó gengið að komast til Færeyja vegna veðurhamsins sem gengur yfir landið. Íslenska liðið átti að fljúga með Icelandair til Vága í Færeyjum í morgun en því flugi var aflýst. HSÍ náði að bóka liðið í vél Atlantic Airways sem átti að fara undir hádegið en mikil seinkun er þegar orðin á því flugi og enn óvíst hvort það fari yfir höfuð af stað í dag. Leikurinn á miðvikudag er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska liðið í baráttu við Færeyjar um 2. sæti undanriðilsins, þar sem Færeyjar eru með 4 stig, eins og Portúgal, en Ísland 2. Leikmenn Íslands fagna sigrinum á Svartfjallalandi fyrr í keppninni. RÚV / Mummi Lú Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Lilja Alfreðsdóttir tímabundið starfsmaður þingflokks Framsóknar Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, er orðin starfsmaður þingflokksins á Alþingi. Starfið er tímabundið meðan annar starfsmaður er í veikindaleyfi. Lilja segir í samtali við fréttastofu að endurskipulagning flokksins sé í fullum gangi og að verk sé að vinna í þinginu. „Það þarf allar hendur á dekk.“ Hún sé að koma inn sem formaður og aðstoða þingflokkinn. Lilja Alfreðsdóttir er orðin starfsmaður þingflokks Framsóknarflokksins á Alþingi. Starfið er tímabundið. RÚV / Ragnar Visage „Við þurfum að fara af meiri þyngd inn í efnahags- og utanríkismálin.“ Lilja telur reynslu sína sem þingmaður og ráðherra koma að góðum notum. Hún sat á þingi frá 2016 til 2024 og var á þeim tíma ráðherra fjögurra ráðuneyta. Fyrir 55 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Sjónvarp Skuggi J.K. Rowling vofir yfir nýjum þáttum um Harry Potter Fjöldi aðdáenda Harry Potter ætlar ekki að horfa á nýja þætti sem byggðir eru á fyrstu bók J.K. Rowling um galdrastrákinn fræga. Skoðanir hennar á trans fólki misbjóða þeim. Íslenskur aðdáandi ætlar að þekja öll Potter-flúrin sín í mótmælaskyni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Friðartillögur á borðinu sem gætu tekið gildi í dag Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Íran eru sögð hafa friðartillögur til skoðunar, sem gætu komið á vopnahléi strax í dag. Sömuleiðis eru drögin sögð kveða á um opnun Hormússunds. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: 32-liða úrslitum lýkur með tveimur grannaslögum Í dag lýkur 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta með fimm leikjum. RÚV sýnir beint frá Suðurnesja- og Reykjavíkurslag. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins allur Íranski byltingarvörðurinn segir yfirmann stofnunarinnar hafa verið felldan í árás Bandaríkjanna og Ísrael. Hótanir ganga á víxl milli Bandaríkjastjórnar og Írana en erindrekar eru sagðir ræða skilmála 45 daga vopnahlés. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Helstu leiðum við höfuðborgarsvæðið lokað og flugi aflýst síðdegis Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir um allt land í dag. Fyrstu gulu viðvaranir taka gildi syðst á landinu klukkan 7:00. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Suðausturlandi klukkan 11:00 og klukkan 14:00 verða appelsínugular viðvaranir í gildi á öllum suðurhelmingi landsins. Viðvaranir gilda þar til seint í kvöld og þær síðustu falla úr gildi á norðaustanverðu landinu í nótt. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst og miklar raskanir verða á millilandaflugi. Fjöldi vega verður á óvissustigi og gæti þeim verið lokað með skömmum fyrirvara. Hringvegurinn er lokaður frá Markarfljóti til Öræfasveitar. Holtavörðuheiði verður lokað klukkan 12:00 og Krýsuvíkurvegi verður lokað klukkan 10:00. FRÉTTAVAKT Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Minnast mannskæðasta eldsvoða 20. aldar: Ólýsanlegur missir sem aldrei var hægt að nefna upphátt Árið 1935 varð eldur laus á jólatrésskemmtun barna í samkomuhúsinu Skildi í Keflavík. Tíu manns létu lífið, þar af sjö börn. Sorgin var lamandi fyrir samfélagið og var atburðurinn lengi hjúpaður þögn. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bretland Gosdrykkjaframleiðandi hættir við að fjármagna tónlistarhátíð í Lundúnum — rakið til þátttöku Kanye West Gosdrykkjaframleiðandi verður ekki aðalbakhjarl tónlistarhátíðar í Lundúnum eftir að tíðindi bárust af þátttöku Kanye West sem hefur vakið reiði fyrir gyðingaandúð og fylgispekt við nasisma. Hann hefur beðist afsökunar og kennt veikindum um orð sín. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður „Þetta er kannski meira svona eins og þorraveður“ Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir þegar tekið að blása og að hvasst verði í allan dag og fram á morgundaginn. Hann segir veðrið helst líkjast þorraveðri en þá hafi lægðir ekki skilað sér. Veðrið verði býsna slæmt. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Minnst 13 almennir borgarar drepnir í loftárás á Teheran og tveir í ísraelsku borginni Haífa Sex börn voru drepin í loftárás Bandaríkjanna og Ísraels á Teheran í morgun. Vitað er að 13 týndu lífi í loftárás á úthverfi. Minnst tveir voru drepnir í loftárás á ísraelsku borgina Haífa og fleiri leitað. Eldflaugum ringdi yfir Persaflóaflóaríki. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál OPEC+ ríkin hækka framleiðslukvóta fyrir hráolíu í maí Framleiðsla á hráolíu verður aukin um 206 þúsund tunnur á dag frá og með maí samkvæmt sameiginlegri ákvörðun OPEC+ ríkjanna. Þau hvetja jafnframt til opnunar siglingaleiða með olíu og gas. Viðgerðir á laskaðri olíuvinnslu séu langvinnar og dýrar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Úkraínumenn saka Rússa um að sviðsetja fyrirhugað skemmdarverk á gasleiðslu í Serbíu Úkraínumenn segja Rússa hafa sviðsett fyrirhugað sprengjutilræði við Balkan-gasleiðsluna í Serbíu til að til að bæta stöðu forsætisráðherra Ungverjalands fyrir kosningar þar í landi. Sá ýjaði að sekt Úkraínumanna sem vildu stöðva orkuflutninga. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Olíuverð hækkar enn í skugga hótana Bandaríkjaforseta um stórfelldar árásir á innviði Írans Verð á hráolíu hækkaði enn í morgun eftir yfirlýsingar Bandaríkjaforseta um að stórfelldar árásir verði gerðar á íranska innviði semji stjórnvöld ekki um stríðslok og opni Hormússund. Íranar hóta enn meiri hörku á móti. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Hápunkti Artemis-leiðangursins náð í dag þegar geimfarið flýgur umhverfis tunglið Hápunktur Artemis II leiðangursins er í dag þegar Orion-farið með fjóra geimfara innanborðs flýgur umhverfis tunglið í meiri fjarlægð en nokkur maður hefur ferðast áður. Almenningur hefur margvíslega möguleika á að fylgjast með ævintýrinu. 6. apríl 2026 kl. 1:10INNLENDAR FRÉTTIR Veður Aukið viðbragð í Grindavík vegna veðurs og óvissu um eldgos Aukið viðbragð verður í Grindavík, vegna veðurs og óvissu vegna mögulegrar eldgosshættu. Icelandair hefur aflýst og flutt til flugferðir og röskun verður á siglingum Herjólfs. Vegum á Suðausturlandi verður lokað snemma og fleiri lokanir eru boðaðar. 5. apríl 2026 kl. 23:23ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Björgun bandaríska hermannsins var gríðarflókin og kostnaðarsöm í peningum talið Nokkrar bandarískar flugvélar voru eyðilagðar meðan á björgun hermanns úr F-15 orrustuþotu stóð seinustu nótt. Aðgerðinni er lýst sem mjög flókinni og verulega kostnaðarsamri. Hundruð sérsveitarmanna og tugir flugvéla voru notaðir við aðgerðina. 5. apríl 2026 kl. 22:36ERLENDAR FRÉTTIR Íran Netlokun Írans sú lengsta í sögunni Íranska þjóðin hefur nú verið án internets í yfir 864 klukkustundir. Samkvæmt Netblocks er lokunin sú langlengsta sem skráð hefur verið. 5. apríl 2026 kl. 22:26INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Bílvelta á Hellisheiði Guðmundur Atli Hlynsson Ökumaður velti bíl á Hellisheiði í kvöld. Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um umferðaróhappið um 21:20. Einar Sigurjónsson aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi staðfestir þetta. Einar segir engan hafa slasast við bílveltuna. Sjúkrabíll hafi verið kallaður á vettvang en enginn þó verið fluttur á sjúkrahús. Hann segir að bílveltan eigi ekki að valda umferðartöfum á Hellisheiði. Samkvæmt myndskeiði frá vettvangi er töluverð bílaröð á heiðinni en fjöldi fólks er á heimleið úr páskafríi vegna óveðursins á morgun. Einar segir umferð þó heilt yfir hafa gengið vel í kvöld. Ökumaður valt bíl sínum á Hellisheiði. RÚV / Ragnar Visage 5. apríl 2026 kl. 21:25INNLENDAR FRÉTTIR Hestar 5 ára og staðráðin í að verða hestakona Fimm ára hestastelpa fór rakleiðis í hesthúsið með fjölskyldunni eftir að hafa opnað páskaeggið í morgun. Hún ríður meðal annars út á verðlauna stóðhesti og er staðráðin í að verða hestakona. 5. apríl 2026 kl. 21:22INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Guðmundur Atli Hlynsson Icelandair hefur aflýst fjórum flugferðum á morgun og er það gert vegna veðurs. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Suðurlandi á hádegi á morgun vegna mikils hvassviðris og stórhríðar. Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, segir alþjóðaflug á áætlun í fyrramálið. Síðla morguns hafi áætlun tekið einhverjum breytingum. Fylgst verði með veðrinu og gerðar viðeigandi ráðstafanir. Samkvæmt vef Keflavíkurflugvallar hefur ferðum Icelandair til Kaupmannahafnar klukkan 10:45, til Amsterdam klukkan 10:50, til Stokkhólms kl. 11 og til Narsaruaq á Grænl