Innlent | Morgunblaðið | 5.4.2026 | 14:50 Þyngir baráttuna við verðbólguna Ingvar Freyr Ingvarsson segir stjórnvöldum vanda á höndum. Samsett mynd/mbl.is/Karítas Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íran „Opnið helvítis sundið“ Íranar ráðast á mikilvæga innviði Flugmanninum bjargað Svara Trump: Allt breytist í helvíti fyrir ykkur Gæti orðið „móralskur sigur“ fyrir Írana » Fleiri tengdar fréttir Átökin sem nú geisa við Persaflóa eru þegar farin að hafa áhrif á eldsneytisverð á Íslandi og segir Ingvar Freyr Ingvarsson að hækkun olíuverðs muni fyrst af öllu koma fram í flugsamgöngum og vöruflutningum. Ingvar er hagfræðingur hjá BHM og segir hann að áhrifin verði hófleg ef tekst að stilla fljótlega til friðar en ef átökin dragast á langinn verði efnahagslegu áhrifin á Ísland alvarlegri. Hann segir ljóst að hækkað orkuverð muni torvelda stjórnvöldum að ná tökum á verðbólgunni og fleira komi við sögu en olíuverð: „Flugfélögin eru með varnir gegn sveiflum í olíuverði sem hjálpar þeim að seinka áhrifunum tímabundið, en langvarandi hækkun olíuverðs mun óhjákvæmilega leiða til hærri rekstrarkostnaðar og hærri fargjalda, sem svo getur haft áhrif á allan ferðaþjónustugeirann.“ Frétt af mbl.is „Við erum í annarri og betri stöðu en Evrópa“ Ingvar segir sjávarútveginn einnig líklegan til að finna fyrir hækkun olíuverðs en það hjálpi greininni að hafa jafnt og þétt fjárfest í að gera flotann sparneytnari. „Hækkað eldsneytisverð gerir alla vöruflutninga dýrari og koma áhrifin hratt fram í verslun, þjónustu og framkvæmdageira, auk þess sem skipaflutningar til landsins verða kostnaðarsamari og viðbúið að það komi fram í verðlagi,“ segir hann. „Landbúnaðurinn er háður ammoníaki í áburðarframleiðslu, en ammoníak er framleitt með jarðgasi sem lykilhráefni. Hækkandi gasverð skilar sér því fljótt í hærri áburðarkostnaði og matvælaverði. Helíum er sömuleiðis unnið samhliða jarðgasvinnslu og er m.a. notað í heilbrigðisgeiranum.“ Árið 2024 gerðu aðilar vinnumarkaðarins með sér langtímasamning til 2028 til að stuðla að stöðugleika í hagkerfinu. Þar var m.a. kveðið á um að segja megi kjarasamningum lausum ef verðbólga mælist yfir tilteknum viðmiðum, og stefnir í óefni ef ekki hefur tekist að koma verðbólgu undir 4,7% markið í september. Þrýstingurinn eykst Að sögn Ingvars stóðu stjórnvöld þegar frammi fyrir þrýstingi í hagkerfinu og hefur verðbólga verið á bilinu 5,2-5,4% frá ársbyrjun, og bætast nú áhrif Íransstríðsins við. Áhrifin ráðist þó einnig af þróun krónunnar og útflutningstekjum, sem geta annaðhvort mildað eða aukið höggið. „Stjórnvöldum er vandi á höndum og þurfa m.a. að gæta þess að beinar aðgerðir í hagkerfinu hafi ekki eftirspurnarhvetjandi áhrif, auk þess sem stefnt er að hallalausum rekstri ríkissjóðs. Það er hreinlega mjög erfitt að eiga við ástandið.“ Ingvar segir að mögulega takist að skapa sátt um að gefa ekki vonina um stöðugleika upp á bátinn. „Og til að það takist þarf fólk að hafa trú á hagstjórninni og traust að ríkja á milli aðila um að samkeppnisumhverfið versni ekki. Mikilvægur þáttur í að skapa traust væri að sýna aðhald í þjónustugjöldum sveitarfélaga, og hafa sem mest gagnsæi og upplýsingagjöf um að verðskrárhækkanir séu ekki umfram raunverulegar kostnaðarhækkanir, s.s. í sorphirðu og dreifingu á heitu og köldu vatni,“ segir Ingvar. „Einnig myndi hjálpa að ráðast í aðgerðir á fasteignamarkaði. Umfram allt þurfa allir að ganga saman í takt.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Íran „Opnið helvítis sundið“ Íranar ráðast á mikilvæga innviði Flugmanninum bjargað Svara Trump: Allt breytist í helvíti fyrir ykkur Gæti orðið „móralskur sigur“ fyrir Írana » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þyngir baráttuna við verðbólguna Van Dijk biðst afsökunar Páskavakan ánægjuleg á Grenjaðarstað Hafrún hafði betur í Íslendingaslagnum Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Sífellt fleiri Íslendingar velja sykurskertar hátíðarblöndur Einn úr áhöfninni fundinn Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Stal úr görðum og bílum Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Ástandið verra á Fjarðarheiði en áður var talið Vélsleðamenn lentu í ánni Breytingin á jöklunum er svakaleg Vandasöm vinna undir brúnni Stórt og mikið mál fyrir Ísland Leigja út heimili á ríflega milljón Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tveir fengu 88 milljónir Gul veðurviðvörun gefin út fyrir landið allt Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg „Það má aldrei vera neitt gaman“ 88 ára getspekingur: „Þetta kom mér ekkert á óvart“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana Nýjast á mbl.is » Þyngir baráttuna við verðbólguna Van Dijk biðst afsökunar Páskavakan ánægjuleg á Grenjaðarstað Hafrún hafði betur í Íslendingaslagnum Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn úr áhöfninni fundinn „Opnið helvítis sundið“ Breytingin á jöklunum er svakaleg Fræðimannsíbúð laus til umsóknar Mest lesið Í gær Í vikunni Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Stal úr görðum og bílum Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Ástandið verra á Fjarðarheiði en áður var talið Vélsleðamenn lentu í ánni Breytingin á jöklunum er svakaleg Vandasöm vinna undir brúnni Stórt og mikið mál fyrir Ísland Leigja út heimili á ríflega milljón Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tveir fengu 88 milljónir Gul veðurviðvörun gefin út fyrir landið allt Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg „Það má aldrei vera neitt gaman“ 88 ára getspekingur: „Þetta kom mér ekkert á óvart“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana