- What: Icelandic health insurance company acquires majority stake in Fontana
- Impact: Changes ownership of a spa and wellness company
Íslenskar Heilsulindir ehf., fjárfestingafélag í eigu Bláa Lónsins hf., hefur gengið frá kaupum á 11,59% hlut í Gufu - Laugarvatni Fontana ehf. af Ferðaskrifstofu Icelandia ehf. Samkeppniseftirlitið heimilaði kaupin í síðustu viku. Íslenskar heilsulindir áttu fyrir kaupin 44,67% hlut í Fontana en með kaupunum er félagið orðið meirihlutaeigandi með 56,26% hlut. Fontana var stofnað árið 2005 og rekur baðstaðinn Laugarvatn Fontana á Laugarvatni. Velta félagsins nam 522 milljónum króna árið 2024 og hagnaður 103 milljónum. Til viðbótar við eignarhlutinn í Fontana eiga Íslenskar heilsulindir m.a. hlut í Jarðböðunum við Mývatn, Norðurböðum hf. og Rauðukömbum ehf. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins kemur fram að áætluð sameiginleg markaðshlutdeild á markaði bað- og vellíðunarþjónustu á Íslandi árið 2024 sé á bilinu 25-30% og á bilinu 40-45% á markaði baðlóna á Íslandi. Markaðshlutdeild hafi þó farið lækkandi á síðustu árum á meðan keppniautar hafa styrkt stöðu sína. Baðlónum á Íslandi hafi fjölgað úr 14 í 18 milli 2021 og 2025 og er gert ráð fyrir 22 baðlónum fyrir árið 2030.