Landhelgisgæsla Svíþjóðar fór í morgun um borð í olíuskipið Flora 1 vegna gruns um að það hafi verið notað til að valda olíuleka í Eystrasalti í gær. Skipið er á viðskiptaþvinganalista Evrópusambandsins en á vef Sænska ríkisútvarpsins segir að það hafi óljósa fánastöðu. Það var snemma í gærmorgun sem Landhelgisgæsla Svíþjóðar uppgötvaði rúmlega 12 kílómetra langan olíuleka austur af Gotlandi, utan sænsku efnahagslögsögunnar. Núna í morgun fór Landhelgisgæslan, í samstarfi við sænsk lögregluyfirvöld, um borð í olíuskipið sem heitir Flora 1. Það liggur nú við akkeri sunnan við Ystad í Svíþjóð. Að svo stöddu er ekki talin hætta á að olía úr lekanum eigi eftir að ná til lands. Erlendu snekkjunni La Datcha var nýverið meinuð hafnarkoma á Akureyri vegna þvingunaraðgerða sem ná til Evrópska efnahagssvæðisins, nánar tiltekið þess hluta aðgerðanna sem kveður á um að skip sem siglir undir rússneskum fána og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar er óheimill aðgangur að höfn á EES-svæðinu. Samkvæmt vef Marine Traffic siglir skipið Flora 1 undir fána Síerra Leóne og er næsti áfangastaður þess Santos í Brasilíu. Grunað er að skipið hafi verið notað til umhverfisbrots og hefur saksóknari í Svíþjóð hafið forrannsókn á málinu. Mattias Lindholm, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í Svíþjóð, segir yfirheyrslur nú standa yfir. Hann telur mögulegt að refsiverð brot reynist fleiri en nú eru til rannsóknar. „Að skipið sé á þvingunarlista ESB gefur til kynna að það séu ýmsar áhugaverðar upplýsingar um nýlega starfsemi þess. Skip sem lúta viðskiptaþvingunum samkvæmt þessum lista hafa oft verið við flutning á rússneskri olíu eða öðrum vörum,“ er haft eftir Lindholm á vef Sænska ríkisútvarpsins. Vísar hann þá væntanlega til svonefnds skuggaflota Rússa. Þriðja skipið á innan við mánuði Er þetta í þriðja sinn á innan við mánuði sem Svíar fara um borð í skip sem grunað er um að sigla undir fölskum fána. Í byrjun mars fór lögregla ásamt Landhelgisgæslunni um borð í flutningaskipið Caffa og sex dögum síðar um borð í olíuskipið Sea Owl. Bæði atvik voru fyrir utan Trelleborg. Það eru aðeins um 50 kílómetrar á milli Trelleborg og Ystad. Þau skip eru einnig á viðskiptaþvingunarlista ESB og eru rússneskir yfirmenn þeirra beggja í haldi grunaðir um refsivert athæfi. Landhelgisgæsla Svía hefur þó ekki staðfest að fyrri skipin hafi einhver tengsl við Flora 1. „Tengslin eru þau að það eru efasemdir um hvaða fána þessi skip sigla í raun og veru undir og hvaða landi þau tilheyra. En við förum um borð núna á grundvelli gruns um umhverfisbrot. Landhelgisgæslan kemur að slíkum aðgerðum oft á ári,“ segir Lindholm. „Þetta er að vísu skip sem passar mjög vel við fyrri skipin. En það er allt annar lagalegur grundvöllur sem hefur gert þessa aðgerð mögulega,“ bætir hann við.