Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skammtíma- eða langtíma­samningur?

Read Full Article →

Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) áttu sinn fyrsta formlega samningafund á þriðjudaginn. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er bjartsýnasta spáin sú að samið verði í sumarbyrjun, í lok apríl eða í maí. Samkvæmt heimildum var ýmislegt rætt á fundinum og eru fulltrúar samninganefndanna eru sem dæmi uggandi yfir þróun efnahagsmála hérlendis. Stjórnvöldum hefur ekki tekist að koma böndum á verðbólguna og fyrir tveimur vikum hækkaði Seðlabankinn stýrivexti 0,25 prósentur, úr 7,25% í 7,5%. Það segir sína sögu um stöðu efnahagsmála hérlendis að tveir af þremur nefndarmönnum peningastefnunefndar vildu hækka vextina um 0,5 prósentur. Enn fremur tiltók nefndin í yfirlýsingu sinni að aukna verðbólgu megi að hluta rekja til hækkunar á opinberum gjöldum. Þetta hefur sem sagt áhrif á viðræðurnar, sem og óvænt útspil ríkisstjórnarinnar að hækka skatta á ferðþjónustufyrirtæki þrátt fyrir loforð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar og utanríkisráðherra um það yrði ekki gert. Þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum í desember 2024 sagði Þorgerður Katrín orðrétt „Við ætlum ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu“. Samkvæmt fjármálaætlun ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var á dögunum, stendur einmitt til að hækka virðisaukaskatt. Ástandið í heimsmálunum hefur líka áhrif á kjaraviðræður. Stríðið við Persaflóa hefur auðvitað bein áhrif á flugfélög, með hækkun olíuverðs. Flytja þarf stóran hluta flugvélaeldsneytis, sem evrópsk flugfélög nota, um Hormússund. Það er því æði margt sem er að hefur áhrif gang kjaraviðræðna Icelandair og flugmanna. Þá er vafalaust engin óskastaða að sitja við samningaborðið á sama tíma og rætt er um það á almenna vinnumarkaðnum hvort forsendur Stöðugleikasamningsins séu brostnar. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins hefur samningslengd lítillega verið rædd í viðræðum Icelandair og FÍA. Í ljósi óvissunnar í efnahagsmálum hérlendis og í heimsmálunum væri skammtímasamningur að mörgu leyti ákjósanlegur. Hin hliðin á peningnum er að með slíkum samningi er verið að fórna ákveðnum fyrirsjáanleika í rekstri Icelandair. Það er erfitt að gera rekstraráætlanir þegar samið er skamms tíma. Lengsti kjarasamningurinn sem FÍA og Icelandair hafa gert var til fimm ára. Yfirleitt hafa verið gerðir tveggja til fjögurra ára samningar. Taka ber fram að daginn eftir fundinn greindi Icelandair frá því í tilkynningu til Kauphallarinnar að undirrituð hefði verið viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe. Félagið er skráð á Möltu og með flugrekstrarleyfi þar. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article