- What: A humorous article about April Fools' jokes, including fake tax-related news.
- Impact: This is a satirical piece, not related to cybersecurity.
Í dag er 1. apríl og því við því að búast að fólk, fyrirtæki og stofnanir reyni að láta sem flesta hlaupa apríl. Sumt gabb er auðveldara að sjá í gegnum en annað en svo virðist sem aprílgabb Morgunblaðsins hafi látið einhverja hlaupa á skrifstofu Skattsins. Í blaðinu birtist frétt undir fyrirsögninni „ Niðurfelling kílómetragjalds fær “ en þar er haft eftir Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra að unnt sé að sækja um afslátt eða jafnvel niðurfellingu kílómetragjalds hjá Skattinum vegna „sérstakra aðstæðna“ með því að fylla út eyðublað sem hægt er að sækja hjá afgreiðslu Skattsins. Skatturinn hefur birt tilkynningu á vef sínum og áréttað að fréttin sé aprílgabb á vegum Morgunblaðsins, en fjármálaráðherra kveðst hafa vitað af gabbinu, þó hann hafi ekki verið með í ráðum. Svo virðist sem starfsmönnum Skattsins sé ekki skemmt yfir gríni Morgunblaðsins en búið er að prenta fréttina út með orðunum „APRÍLGABB“ í stóru rauðu letri og hengja upp við inngang Skattsins í Katrínartúni. Morgunblaðið stendur við aprílgabbið. „Frjálsir fjölmiðlar leita ekki samþykkis stjórnvalda fyrir fréttaflutningi sínum eða aprílgöbbum. Morgunblaðið og mbl.is standa við aprílgabbið,“ segir í frétt mbl.is sem birtist eftir hádegi. Vísir hefur eftir sviðsstjóra þjónustusviðs Skattsins að stofnunin hafi ekki haft vitneskju um gabbið og að henni þyki miður að fólk sé jafnvel að ferðast langar leiðir í erindisleysi. Gabbið auki álagið á starfsfólk. Skattstjóri tekur undir að ekki sé heppilegt að blekkja viðskiptavini Skattsins og segir fréttina hafa komið sér í opna skjöldu. Fleiri hafa spreytt sig á því að gabba landsmenn, flestir á léttari nótum en kílómetragjaldið. Húsgagnaverslunin Ikea hefur tilkynnt opnun Storland, boltaland fyrir fullorðna. Þá greinir súkkulaðiframleiðandinn Nói Síríus frá mistökum sem áttu sér stað í aðdraganda páska í ár. Svo virðist sem hugmyndaskjal, þar sem gervigreindarforritið ChatGPT spreytti sig á nýmóðins málsháttum, hafi óvart ratað í prent og alla leið í nokkur Trítlaegg frá Nóa Síríus. Enn séu Trítlaegg í verslunum á höfuðborgarsvæðinu með ChatGPT-málsháttum. Einn málshátturinn les: „Ekki er allt satt sem fer viral.“ Fyrirtækið Happy hydrate tilkynntu nýja vöru á markaði, steinefnadrykk fyrir ofþornaða hunda. Þjóðleikhúsið virðist hafa þjófstartað sitt aprílgabb en í gærkvöld birtist tilkynning á vef leikhússins um að þar yrði boðið upp á spinningtíma með Jakobi og Króla, við hljóma tónlistarinnar úr Ormstungu. Þá tilkynnti Landbúnaðarháskóli Íslands að skólinn hafi tekið ákvörðun um að flytja inn alpakka til rannsókna og ræktunar á Hvanneyri. Gert sé ráð fyrir að þau verði einnig aðdráttarafl fyrir gesti og ferðamenn sem heimsækja svæðið. Bónus hefur hafið sölu á íslensku Bónus-lofti í verslunum sínum og Árnastofnun fagnar nýrri prentútgáfu af beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN). Hægt er að nálgast bókina við þjónustuborð Eddu í Háskóla Íslands. 66° Norður tilkynntu nýtt verkefni þar sem fyrirtækið mun klæða helstu styttur borgarinnar í hlý föt. Það hafi farið að bera á sprunguskemmdum vegna síbreytilegrar úrkomu og hitabreytinga. Meðfylgjandi í tilkynningunni er mynd af Skúla fógeta í úlpu frá fatamerkinu. N1 tilkynnti einnig nýja þjónustu í samstarfi við Wolt sem getur fært viðskiptavinum eldsneytið heim. Lögreglan á Norðurlandi vestra segir embættinu hafa borist óvenjuleg gjöf í dag. Nafnlaus safnari hafi fært embættinu uppstoppaðan geirfugl sem verði til sýnis á stöðvum embættisins í dag. Fataverslunin Andrá og Lyfja tilkynntu samstarf sitt um framleiðslu trefla með merkjum þeirra, en verslunin er til húsa í gömlu verslun Lyfju á Laugaveginum. Víkurfréttir greindu frá því að Ragnar Guðleifsson dýrafangari hefði fangað sæskjaldböku í Grófinni í Keflavík, rétt við Skessuhellinn. Sérfræðingar séu væntanlegir á svæðið í dag til að skoða skjaldbökuna og flytja hana til frekari rannsókna. Það sé því síðasti séns að koma og skoða hana í dag.