Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Taka við hálfri milljón bóka á ári

Read Full Article →

„Fólk vill eiga bækur, við sjáum það alveg,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. „Góði hirðirinn er hluti af Sorpu og þær bækur sem fara inn í nytjagámana fyrir Góða hirðinn, þær standa sennilega á hálfri milljón á ári. Við förum örugglega í gegnum 500 þúsund bækur í Góða hirðinum. Af þeim seljast svona um 170 þúsund.“ Restin endar því í pappírsendurvinnslu. Um helgina birti Hallgrímur Helgason rithöfundur mynd á Facebook sem sýnir fjölda bóka, þar á meðal eftir Þórberg Þórðarson, í pappírsgámi. Bækurnar voru sem sé á leið í ruslið. Í kjölfarið hefur skapast mikil umræða um bækur og bókmenntaarfinn og sitt sýnist hverjum. Á meðan sumir benda á hve sorgleg örlög það séu fyrir bækur að enda á haugunum segja aðrir þetta óumflýjanlegt. Það sé jú ekki hægt að geyma hvert einasta eintak um ókomna tíð. Stundum þurfi að rýma fyrir nýjum bókum og þegar ganga þurfi frá dánarbúum sitji fólk oft uppi með heilu staflana sem enginn vill taka við. Þetta þekkir Gunnar Dofri sem heimsótti Síðdegisútvarpið á Rás 2 til að ræða um allar bækurnar sem Sorpa tekur við. „Fyrir áratug eða svo þegar við fórum í gegnum dánarbú hjá ömmu þá fylltum við bílskott af bókum og ég held að það hafi farið inn í Ármúla frekar en eitthvert annað,“ segir Gunnar en í Ármúla má finna fornbókabúðina Bókakaffið. „Það er eftirspurn eftir þessu en mér segir svo hugur að það séu ekki margar verslanir sem myndu vilja fá 350 þúsund bækur flæðandi yfir sig til að selja, sem er staðan sem við erum í.“ Mikil umræða hefur sprottið um örlög bóka eftir að Hallgrímur Helgason rithöfundur birti mynd af pappírsgámi fulum af bókum um helgina. Góði hirðirinn seldi um 170 þúsund bækur í fyrra. Gunnar skýtur á að Góði hirðirinn sé á meðal stærstu bókabúða landsins. Hann vill sjá bókaútgefendur og bóksala taka virkari þátt í því að viðhalda hringrás bóka. „Ef það fer hálf milljón í ruslið á hverju ári, eða til okkar í Góða hirðinum og svo eitthvað annað í ruslið, þá eru þetta mörg hundruð þúsund bækur á hverju ári sem fólk er að losa sig við.“

Share this article