Innlent | mbl | 26.3.2026 | 17:22 Kristrún á leiðtogafundi JEF í Helsinki Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir við fjölmiðla á fundinum í dag. Ljósmynd/Skrifstofa forseta Finnlands/Matti Porre Setja bókamerki Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force – JEF) í Helsinki ásamt leiðtogum Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og forsætisráðherrum Bretlands og Hollands. Auk leiðtoga JEF-ríkjanna ávarpaði forseti Úkraínu og forsætisráðherra Kanada fundinn. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu . Fóru fundarmenn yfir stöðuna í öryggis- og varnarmálum álfunnar og ræddu meðal annars um aðgerðir og aukinn viðbúnað JEF-ríkjanna gegn fjölþáttahernaði, þróun öryggismála á norðurslóðum og á Norður-Atlantshafi, stuðning við Úkraínu og aðgerðir til að þrengja að hinum svokallaða skuggaflota Rússa. Fagnar því að leiðtogarnir þiggi boðið Var sú ákvörðun tekin á fundinum að íslenski forsætisráðherrann yrði gestgjafi leiðtogafundar ríkjanna á næsta ári. „Leiðtogarnir ræddu stöðu mála í Úkraínu en JEF-ríkin hafa verið í fararbroddi þeirra sem veitt hafa Úkraínu pólitískan og fjárhagslegan stuðning í formi hergagna, búnaðar og þjálfunar. Þá var rætt um Atlantshafstengslin og upptakt að næsta leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara í sumar,“ segir Stjórnarráðið enn fremur í tilkynningu sinni. „Ég fagna því að leiðtogarnir þiggi boð okkar um að halda næsta JEF-fund á Íslandi, í fyrsta sinn. Þannig leggjum við okkar lóð á vogarskálarnar í samstarfinu og beinum jafnframt sjónum að stöðu mála á norðurslóðum, á okkar svæði,“ er haft eftir Kristrúnu í tilkynningunni. Mikilvægt í öryggislegu tilliti Þar sagði hún aukinheldur að JEF-samstarfið væri mikilvægt Íslandi, íslenskum öryggis- og varnarhagsmunum og getu Íslendinga til að bregðast við hugsanlegum ógnum í nærumhverfinu. „Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá aukna áherslu á Norður-Atlantshafið og norðurslóðir sem fellur mjög vel að þeim áherslum sem birtast í nýsamþykktri stefnu í varnar- og öryggismálum,“ er haft eftir forsætisráðherra. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kristrún á leiðtogafundi JEF Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Ísland U21 - Eistland U21, staðan er 2:1 Miðjumaður City daðraði við Real Madrid Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Umferðin með minna móti“ „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Katla minnir á sig Björgunarsveitarmenn keyrðu á milli strætóskýla Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Kristrún á leiðtogafundi JEF Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Ísland U21 - Eistland U21, staðan er 2:1 Miðjumaður City daðraði við Real Madrid Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Reykjanesbrautin er lokuð „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Myndskeið: Krefjandi aðstæður á brautinni Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl