Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Ómannað fley gerði árás á olíuskip á Svartahafi

  • What: Explosion on an oil tanker in the Black Sea
  • Impact: Likely disruption to oil supply routes and regional tensions
Read Full Article →

Sprenging varð í tyrknesku olíuflutningaskipi, skammt frá Bosphórussundi, á Svartahafi í morgun. Ekki er vitað hvort árásin var gerð innan tyrkneskrar lögsögu en tyrkneska samgönguráðuneytið segir óþekkt fley hafa gert hana. Vitað er að Úkraínuher hefur iðulega notað neðansjávardróna við atlögur að rússneskum skipum á Svartahafi. Skipið siglir undir fána Síerra Leone en er rekið af tyrknesku skipafélagi og geymar þess voru nýlega fylltir af rússneskri hráolíu, að sögn samgönguráðherrans Abdulkadir Uraloglu. Björgunarsveitir eru þegar á vettvangi. Uraloglu segir atlögunni sérstaklega hafa verið beint að vélarrúmi skipsins, til að gera það ósiglingarhæft. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti varaði við því í desember að Svartahaf gæti orðið vettvangur styrjaldarátaka milli Rússa og Úkraínumanna eftir nokkur atvik sem honum þóttu ógna öryggi tyrkneskra skipa. Tyrklandsstjórn hefur haldið nánum tengslum við Úkraínu og Rússland frá því innrásarstríðið hófst fyrir rúmum fjórum árum.

Share this article