Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rýmingu aflétt sums staðar á Seyðisfirði

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rým­ingu aflétt sums staðar á Seyð­is­firði Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Helgi Haraldsson Rýmingu hefur verið aflétt á ákveðnum reitum á Seyðisfirði, það eru reitirnir SE01, SE02 og SE04. Rýming verður í gildi áfram á reitum SE24 og SE26. Þetta tilkynntu almannavarnir á Austurlandi rétt í þessu. Þá verður staða rýminga á reitum SE24 og SE26 metin að nýju í fyrramálið. Ákveðið var að rýma ákveðin hús á Seyðisfirði í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu. Fyrir 14 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Rauða blokk­in með yf­ir­hönd­ina í nýjum spám Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Samkvæmt nýrri spá TV2 um þingkosningarnar í Danmörku fær rauða blokkin, vinstriflokkarnir, 83 þingsæti, bláa blokkin, hægriflokkarnir, 79 þingsæti og miðjuflokkurinn Moderaterne 13 sæti. Spá DR, sem tekur mið af 66,7% atkvæða, segir til um að rauða blokkin fái 81 sæti, bláa blokkin 80 og Moderaterne 14. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne. AP/ntb / Jonas Been Henriksen Samkvæmt þessum spám verður ekki hægt að mynda ríkisstjórn án Moderaterne. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne, er því í mjög góðri stöðu. Hann hefur lýst yfir vilja til að leiða samtal um ríkisstjórnarmyndun. Samkvæmt spám beggja fjölmiðla fá allir tólf flokkarnir í framboði sæti á þingi. Þetta eru spár en ekki niðurstaða kosninganna. Fyrir 31 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Hníf­jafnt milli blokka sam­kvæmt nýrri spá Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Ný spá danska ríkisútvarpsins um úrslit þingkosninganna hefur verið birt sem tekur mið af talningu fyrstu atkvæða. Samkvæmt henni fá bláa blokkin, hægriflokkarnir, og rauða blokkin, vinstriflokkarnir, jafn mörg þingsæti, 81. Miðjuflokkurinn Moderaterne fær 13 sæti. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne. AP/ntb / Jonas Been Henriksen Búið er að telja nær helming atkvæða, eða 47%. 179 sæti eru á danska þinginu og því þarf 90 þingsæti til að mynda meirihluta. Þetta þýðir að enn væri ekki hægt að mynda meirihluta án miðjuflokksins Moderaterne. Þetta er þó bara spá en ekki niðurstaða kosninganna. Fyrir 48 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Hrann­ari skipt út fyrir úr­slita­keppn­ina Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Hrannar Guðmundsson er hættur hjá Stjörnunni. Mummi Lú Stjarnan hefur sagt Hrannari Guðmundssyni upp störfum sem þjálfara karlaliðs félagsins fyrr en ætlað var. Tilkynnt hafði verið í febrúar að hann myndi hætta eftir leiktíðina og Tandri Már Konráðsson og Sverrir Eyjólfsson tækju við en þeir stíga inn fyrr en áætlað hafði verið. Stjarnan endaði í 11. sæti úrvalsdeildarinnar og fer því í umspil eða eins konar úrslitakeppni með Gróttu, Herði og Fjölni sem léku í næstefstu deild í vetur, um sæti í efstu deild á næstu leiktíð. Nú er ljóst að Hrannar mun ekki stýra Stjörnunni í þessum leikjum heldur Tandri og Sverrir eftir tilkynningu Stjörnunnar í kvöld. Fyrir 50 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Urð­ar­hvarf léttir veru­lega á Land­spít­al­an­um Fyrstu skjólstæðingarnir flytja í hjúkrunarrými í Urðarhvarfi á mánudaginn. Verið er að leggja lokahönd á húsnæðið sem rúmar 100 manns frá Landspítalanum. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Salah yf­ir­gef­ur Liver­pool Egypski fótboltamaðurinn Mohamed Salah yfirgefur Liverpool að aflokinni yfirstandandi leiktíð. Þetta tilkynnti hann í kvöld. Salah er fjórði markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Eft­ir­tekt­ar­verð­ur ár­ang­ur í lestr­ar­kennslu í Rima­skóla Lestrarkennsla hjá 1.bekk í Rimaskóla í Grafarvogi gengur framar vonum. Öll börnin eru orðin læs, þökk sé árangursríkri kennsluaðferð. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður ESB og þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla til umræðu á Torg­inu Hátt í 300 spurningar hafa borist frá almenningi í aðdraganda Torgsins í kvöld. Umræðuefnið var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Margar spurninganna sem borist hafa snúast um áhrifin sem innganga hefði í för með sér. Má þar nefna á vexti og verðlag og auðlindir þjóðarinnar. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Óvissa um kostn­að vegna mögu­legs fram­halds að­ild­ar­við­ræðna Beinn bókfærður kostnaður við ESB-aðildarviðræður árin 2010 til 2012 var rúmlega 300 milljónir króna. Utanríkisráðuneytið segir kostnað við mögulegt framhald viðræðna háð óvissu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Jafn­að­ar­menn með mest fylgi en þó sögu­lega lítið, sam­kvæmt út­göngu­spám Kjörstöðum hefur verið lokað í Danmörku og samkvæmt útgönguspá DR, danska ríkisútvarpsins, fær Jafnaðarmannaflokkurinn 19,2 prósent atkvæða og flest atkvæði. Verði það raunin yrði það minnsta fylgi flokksins síðan 1901. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál „Stýri­vext­ir eru ekki að fara að stöðva átökin í Mið-Aust­ur­lönd­um“ Formaður VR segir að olíufélög og stjórnvöld þurfi að bregðast við til að draga úr áhrifum verðbólgu á almenning af völdum sviptinga á alþjóðavettvangi. Forsendur kjarasamninga bresti líklega í haust. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fjarð­ar­heið­ar­göng nauð­syn­leg til að tryggja heil­brigð­is­þjón­ustu á Aust­ur­landi Fjarðarheiðargöng eru nauðsynleg til að tryggja örugga heilbrigðisþjónustu á Austurlandi segir framkvæmdastjóri lækninga. Sjúklingur var fluttur landleiðina milli Egilsstaða og Akureyrar í víðtækum vegalokunum í gærkvöld. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óttast að oftar þurfi að hverfa frá Ak­ur­eyr­ar­flug­velli í slæmu skyggni Forsvarsmenn Norlandair hafa áhyggjur af því að ratsjá hafi verið tekin úr notkun á Akureyrarflugvelli, sem gat nýst vel í slæmu skyggni. Samgöngustofa segir ratsjánna ekki standast nútímakröfur. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Fylgd­ar­akst­ur yfir Fagra­dal um kvöld­mat­ar­leyt­ið Hugrún Hannesdóttir Diego Fylgdarakstur verður yfir Fagradal, frá Reyðarfirði klukkan 18:00 og frá Egilsstöðum klukka 19:00. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Vegurinn um Fagradal er lokaður vegna snjóflóðahættu og verður honum lokað aftur að fylgdarakstri loknum. Hann verður svo ekki opnaður aftur í kvöld. Fylgdarakstur fer þannig fram að mokstursbíll fylgir umferð frá lokunarhliðum yfir heiðina. Umferð er óheimil nema í fylgd fyrrgreindrar bifreiðar. Mikil snjóþyngsli eru á Austurlandi. Myndin er tekin á Seyðisfirði. Skjáskot / RÚV Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leikskólar „Auð­vit­að var maður í sjokki og fer að hugsa: Ætli mitt barn hafi lent í honum?“ Móðir barns á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri segist fyrst hafa heyrt af rannsókn lögreglu á óviðeigandi framkomu starfsmanns gagnvart barni fyrir einu og hálfu ári í tölvupósti frá Akureyrarbæ á föstudag. Hún segir mikla reiði meðal foreldra. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Tvö hand­tek­in vegna gruns um njósn­ir fyrir Rússa Karl og kona eru grunuð um að hafa njósnað um mann sem útvegaði Úkraínumönnum litla árásardróna. Rannsakendur telja að til hafi staðið að valda manninum skaða. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Allt á kafi í snjó á Seyð­is­firði Hættustig vegna snjóflóða er enn í gildi á Seyðisfirði. Um tíu manns yfirgáfu heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu. Flestir fjallvegir á austanverðu landinu eru lokaðir. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Svona er ferlið ef þjóðin sam­þykk­ir að „kíkja í pakk­ann“ Landsmenn þyrftu minnst tvívegis aftur í kjörklefann fari svo að samþykkt verði að halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Hér er útskýrt hvaða ferli myndi taka við. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Sex sóttu um starf skóla­stjóra í Grinda­vík Sex sóttu um lausa stöðu skólastjóra við nýjan samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík. Umsóknarfrestur rann út 16. mars. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Um­ferð­ar­stýr­ing á Reykja­nesi, Snæ­fells­nesi og Vest­fjörð­um þegar al­myrkvi verður á sólu Til að tryggja greiða leið viðbragðsaðila og auðvelda flæði umferðar gerir Vegagerðin ráð fyrir umferðarstýringu á ákveðnum vegum á vesturhluta landsins 12. ágúst. Búist er við mikilli umferð vegna almyrkva á sólu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstr­ið til­kynn­ir fram­boð í Hafn­ar­firði Vor til Vinstri og VG í Hafnarfirði tefla fram sameiginlegu framboði til sveitarstjórnarkosninganna í vor. Framboðið nefnist Vinstrið í Hafnarfirði. Ester Bíbí Ásgeirsdóttir leiðir listann. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Helm­ing­ur Dana búinn að kjósa Grétar Þór Sigurðsson Frá kjörstað í ráðhúsi Kaupmannahafnar. AP / Sergei Grits Rétt rúmlega helmingur Dana er búinn að skila atkvæði sínu í kjörkassann. Þetta kemur fram í fréttavakt DR þar sem fylgst er með dönsku þingkosningunum. Kjörsóknin það sem af er degi er litlu meiri nú en í síðustu kosningum 2022. Þess ber þó að geta að inni í þessum tölum eru póstatkvæði sem eru öllu fleiri nú en í síðustu kosningum. Sérfræðingar telja að kjörsókn verði ívið lakari nú en fyrir fjórum árum. Kjörstaðir loka í Danmörku klukkan 7 að íslenskum tíma og þá verður gefin út útgönguspá. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Fjar­skipta­trufl­an­ir í Ísa­fjarð­ar­djúpi vegna bruna í end­ur­varps­stöð Fjarskiptatruflanir urðu í Ísafjarðadjúpi þegar endurvarpsstöð brann um helgina. Illa hefur gengið að hefja viðgerðir vegna vonskuveðurs og ófærðar. Rekstrarstjóri hjá Neyðarlínunni segir stefnt að því að koma öllum fjarskiptum í gagnið á morgun. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menntamál Komast ein­fald­lega ekki inn Án aðgerða í íslensku menntakerfi gæti skortur á vinnuafli á sviði mannvirkjagerðar valdið minni uppbyggingu og töfum á framkvæmdum sem draga úr samkeppnishæfni atvinnulífsins. Fleiri hundruð umsækjendum hefur verið vísað frá iðnnámi undanfarin ár. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Hætta við leið­toga­um­ræð­ur á kosn­inga­nótt Grétar Þór Sigurðsson Flokksleiðtogar ræða saman að loknum lokakappræðum í gærkvöld. EPA / Mads Claus Rasmu

Share this article