Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Mikil bjartsýni fyrir næsta ár eftir loðnuvertíðina

Read Full Article →

„Þetta hefði varla getað gengið betur,“ segir Grétar Örn Sigfinnsson, rekstrarstjóri útgerðar Síldarvinnslunnar, í uppgjöri á nýafstaðinni loðnuvertíð, sem sögð er hafa verið bæði góð og gleðileg. „Veiðar gengu vel og veður á miðunum yfirleitt hagstætt. Þá gekk vinnsla einnig eins og best verður á kosið. Það var grænlenska skipið Polar Amaroq sem kom með fyrsta farm vertíðarinnar til Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þann 20. janúar og það var Hákon ÞH sem kom þangað með lokafarminn þann 16. mars. Alls bárust til Neskaupstaðar 41.754 tonn á vertíðinni,“ segir á svn.is . Enn sé loðna á ferðinni fyrir austan land Grétar Örn Sigfinnsson segir að loðnuvertíðin hafi hreint út sagt gengið eins og í sögu. „Síldarvinnslan var með þrjú skip að veiðum og síðan er fyrirtækið tengt útgerð grænlensku skipanna Polar Amaroq og Polar Ammassak. Hjá öllum þessum skipum gekk vertíðin afar vel. Það var mikið að sjá af loðnu og allt með hagstæðasta móti. Bátasjómenn tala um að enn sé loðna á ferðinni fyrir austan land og við blasti að vestanganga var tiltölulega öflug. Menn eru mjög bjartsýnir varðandi loðnuvertíð næsta árs og vonandi er loðnustofninn að ná sér virkilega á strik en það mun hafa jákvæð áhrif víða í samfélaginu. Næst á dagskrá hjá okkar uppsjávarveiðiskipum eru kolmunnaveiðar og auðvitað eru þær líka spennandi þáttur,” er haft eftir Grétari. Öll loðnan í Neskaupstað fór til manneldisvinnslu Þá segir að síldarvinnsluskipin, sem lögðu stund á loðnuveiðar á vertíðinni hjá Síldarvinnslunni hafi verið Barði NK, Beitir NK og Börkur NK. Þau hafi lokið veiðum um 10. mars þegar kvóti þeirra var uppurinn. Afli Barða á vertíðinni hafi verið 7.271 tonn, afli Beitis 10.727 tonn og Barkar 11.055 tonn. „Öll loðna, sem kom á land í Neskaupstað, fór til manneldisvinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Til mjöl- og lýsisvinnslu í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins fór það sem flokkaðist frá við manneldisvinnsluna og einnig hið svonefnda hrat frá hrognavinnslunni,“ segir á vef Síldarvinnslunnar. Afskaplega sáttir í fiskiðjuverinu Rætt er við Geir Sigurpál Hlöðversson, rekstrarstjóra fiskiðjuversins, sem kveður vinnsluna hafa gengið afar vel og að starfsfólkið eigi svo sannarlega eiga hrós skilið. „Það var unnið á vöktum við framleiðsluna og má alveg segja að hún hafi gengið eins og best verður á kosið. Fryst voru 21.884 tonn af loðnu og 2.933 af hrognum. Vertíðin gat í reyndinni ekki gengið mikið betur svo menn eru afskaplega sáttir hér í fiskiðjuverinu,” segir Geir Sigurpáll á svn.is . Kusayanagi komið frá Japan á meira en þrjátíu vertíðir Japanskir fulltrúar kaupenda skoða loðnuhrogn af mikilli nákvæmni. Mynd/Smári Geirsson Fulltrúar frá japönskum kaupendum fylgdust náið með starfseminni í fiskiðjuverinu alla vertíðina og voru mjög ánægðir með gang málam að því er kemur fram í færslunni. „Á meðal Japananna var Kusayanagi, sem venjulega er kallaður Kusa, en hann hefur komið á loðnuvertíðir á Íslandi í yfir 30 ár og gjörþekkir allar aðstæður. Japanirnir fylgdust sérstaklega með frystingu á hrygnu eða svonefndri Japansloðnu og síðan framleiðslu á loðnuhrognum,“ segir áfram. Mjöl- og lýsisvinnslan gekk afar vel „Á loðnuvertíðinni voru rúmlega 21.600 tonn unnin í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar. Tæplega 4.700 tonn komu frá fiskiðjuverinu en það var sú loðna sem flokkaðist frá við frystinguna. Síðan komu til verksmiðjunnar 16.900 tonn af hrati sem kom frá hrognaskurðinum. Að sögn Hafþórs Eiríkssonar verksmiðjustjóra gekk mjöl- og lýsisvinnslan afar vel,“ segir á vef Síldarvinnslunnar. Augljós þörf á erlendum mörkuðum Að lokum ræðir útsendari heimasíðu Síldarvinnslunnar við Stefán Einar Elmarsson, verkstjóra í frystigeymslunum í Neskaupstað. Hann segi að nóg hafi verið að gera hjá starfsmönnum þeirra á loðnuvertíðinni. Augljóst er að sögn Stefáns að þörf hafi verið til staðar á erlendum mörkuðum fyrir loðnuna og því hafi mikið legið á að afgreiða frystiskip sem komu til Neskaupstaðar. Eins hafi loðnan verið flutt út í frystigámum sem skipað var út á Reyðarfirði. Um 1.900 tonn af loðnu frá þessari vertíð hafi þegar farið með frystiskipum frá Neskaupstað og um 2.500 tonn hafi farið með gámum. „Loðnuvertíðin hefur svo sannarlega verið annasöm hjá okkur hér í geymslunum, en í reynd hefur allt gengið vel,” segir Stefán Einar Elmarsson.

Share this article