Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Frestar árásum á orkuinnviði eftir gagnlegar viðræður við Írana

Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að bandarísk og írönsk stjórnvöld hafi átt í gagnlegu samtali um endalok stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Hann hefur frestað fyrirhuguðum árásum á írönsk orkuver um fimm daga. Frá þessu greinir Trump í færslu á Truth Social. Þar segir hann ráðamenn beggja ríkja hafa rætt saman á síðustu tveimur dögum. Í ljósi þess hve vel viðræður gangi hafi Trump skipað hernaðarráðuneyti sínu að fresta öllum árásum á orkuver og -innviði í Íran um fimm daga. Hann segir að viðræður eigi haldi áfram í vikunni. Hótaði árásum á orkuver ef Hormússund yrði ekki opnað Á laugardag hótaði Trump því að orkuverum Írans yrði gjöreytt ef ekki yrði opnað aftur fyrir skipaumferð um Hormússund. Það er afar mikilvæg siglingaleið sem skilur að Persaflóa og Ómanflóa. Um sundið er um fimmtungur allrar olíu heimsins fluttur. Stjórnvöld í Íran lokuðu sundinu nær alveg eftir að árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hófust. Í morgun brást þjóðaröryggisráð Írans við hótunum Trumps og sagðist ætla að girða hreinlega fyrir Persaflóa með tundurduflum ef árásir yrður gerðar á strandlengju Írans eða eyjar landsins. Eftir að flutningar um Hormússundi stöðvuðust hefur heimsmarkaðsverð olíu rokið upp. Svo virðist sem tilkynning Trumps hafi glætt vonir um að stríðinu fari að ljúka. Strax eftir að forsetinn birti færslu sína hrapaði olíuverð um tíu prósent. Þá hækkaði hlutabréfaverð á öllum helstu mörkuðum í Evrópu sömuleiðis.

Share this article