Lágafell Verslun og byggingar ehf. er leiðandi í innflutningi gróðurhúsa en auk þess flytur fyrirtækið inn fullbúin íbúðar- og sumarhús, meðal annars frá lithánska framleiðandanum Resta. „Við höfum markvisst verið að kynna nýjungar á vettvangi gróðurhúsa og hefur sala þeirra vaxið með hverju árinu, enda eru sífellt fleiri að átta sig á því hversu þægilegt er að vera með svona lausn á pallinum eða í garðinum hjá sér. Þannig getur fólk notið sólarljóssins í hlýju og notalegu umhverfiþrátt fyrir kaldan vind utandyra,“ segir Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Lágafells. Að hans sögn hefur það færst mjög í vöxt að setja gróðurhús á stóra sólpalla til að auka nýtingu þeirra. „Gróðurhúsin eru þá jafnframt notuð til að skapa skjól og lengja útivistartímann. Við finnum líka fyrir aukinni vitund um mikilvægi nægrar birtu fyrir sálarlífið, sérstaklega yfir dimmustu mánuðina. Víða er ónóg birta inni í húsum í svartasta skammdeginu og því velja margir að vera með hita í gróðurhúsunum og nýta þau allt árið um kring. Gróðurhúsin okkar eru sérstyrkt og hönnuð með tillititil íslenskra aðstæðna og þola því vel íslenskt veðurfar eins og 27 ára farsæl reynsla gróðurhúsanna okkar hérlendis sýnir vel.“ Trefjaplasthús og veggvasar frá Scan Plast Líkt og áður flytur Lágafell Verslun og byggingar áfram inn tilbúin hús og meðal nýjunga bendir Finnbogi á fjölbreyttar lausnir frá danska framleiðandanum Scan Plast. Veggvasar eru einföld og ódýr leið til að breyta vannýttum kjöllurum í verðmætt húsnæði. „Þar ber helst að nefna tilbúnar salerniseiningar sem eru smíðaðar úr trefjaplastseiningum með einangrun á milli. Þessi salerni eru viðhaldsfrí að utan og afar auðveld í þrifum, hvort sem er með hefðbundnum hætti eða með vatnsslöngu og jafnvel háþrýstidælu. Með þessari lausn má spara verulegar fjárhæðir í árlegu viðhaldi og dagleg umhirða þeirra er mun ódýrari en í hefðbundnum lausnum,“ segir Finnbogi. Hann segir fleiri áhugaverðar vörur frá Scan Plast vera á leiðinni inn á markaðinn. „Við kynnum meðal annars einangraða kassa sem henta t.d. vel til frágangs á dælum eða rafmagnskössum á bersvæðum eða við útveggi húsa. Með þessum tilbúnu kössum má oft spara mikinn kostnað sem annars færi í sérsmíðaðar lausnir, auk þess sem kassarnir eru viðhaldsfríir og smekklegir.“ Ein önnur nýjung á Íslandi eru svokallaðir veggvasar.„Scan Plast framleiðir veggvasa úr trefjaplassi eftir máli sem gera kleift að setja glugga eða síkka núverandi glugga í niðurgröfnum kjöllurum á einfaldan hátt. Þannig má auka notagildi kjallara, tryggja meiri birtu og jafnframt uppfylla kröfur um flóttaleiðir,” segir Finnbogi. „Þá framleiðir Scan Plast einnig trefjaplötur sem lagðar eru á jarðveg til að verja viðkvæmsvæði við flutning stórra ökutækja eða til að brúa holur og skurði í vegum. Þetta eru fjölhæfar og sterkar lausnir sem henta vel við krefjandi aðstæður,“ segir Finnbogi að lokum.