Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Málssókn á hendur Ísrael og framhald ESB-innlimunar Íslands

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 21.3.2026 | 7:00 Málssókn á hendur Ísrael og framhald ESB-innlimunar Íslands Einar S. Hálfdánarson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Ríkisstjórn Íslands álítur tvö mál þau mikilvægustu þar sem landið þarf að beita afli sínu, jafnt innanlands sem utan. Annað er að afla fylgis við að erlent ríkjasamband innlimi Ísland og við glötum fullu og óskoruðu sjálfstæði okkar. Hitt er að beita áhrifum sínum gegn Ísrael í vörnum þess gegn hryðjuverkaöflum í Íran og á Gaza – gegn „lokalausninni“, útrýmingu gyðinga. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sér hagsmunum Íslands best borgið í samvinnu við nokkur ríki sem eru ekki beint nafntoguð fyrir virðingu fyrir mannréttindum (þarna tek ég ekki stórt upp í mig). Þarna eru þrjú arabaríki, Tyrkland og nokkur ríki í Suður-Ameríku sem stjórnað er af harðlínusósíalistum og kommúnistum. Örfá ríki Evrópu beita sér í málssókninni á hendur Ísrael. Þar fer Spánn fremst, ríkið sem fyrst náði að hreinsa land sitt af gyðingum. – En svona er nú söguþekking samtímans. Strax eftir hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael tók Suður-Afríka að berjast gegn Ísrael og verja Hamas-hryðjuverkasamtökin, en ætti kannski að líta sér nær. Landið beitir hvíta minnihlutann alvarlegri mismunun og lætur viðgangast að jarðir bænda séu gerðar upptækar án bóta. Nauðganir og annað ofbeldi gegn konum er geysilega útbreitt og fátt gert þeim til verndar. Suður-Afríka er gerspillt land sem hefur að auki eina hæstu morðtíðni í heiminum. Þennan félagsskap kýs frú Þorgerður Katrín sér. Hvað gengur ríkisstjórn Íslands til? Ríki eiga hagsmuni, ekki vini, er oft sagt. Við fengum að reyna það í bankahruninu. Noregur hagaði sér eins og hrægammur gegn okkur. Danir og Svíar gengu síðar ekkert betur fram. Bresk sósíalistaríkisstjórn traðkaði á okkur. Hollendingar vildu eignast Landsvirkjun. Aðeins Seðlabanki Íslands undir forystu Davíðs heitins Oddsonar náði, Guði sé lof, að koma í veg fyrir algera lokun Íslands frá umheiminum. Frú Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kunni honum litlar þakkir fyrir afskipti hans í bankahruninu eins og alræmt er. Margir hafa hugleitt hvað frú Þorgerði Katrínu gangi til með því að ganga til liðs við ofannefnd öfgaríki í málssókn þeirra í andstöðu við Bandaríkin. Ástæðan blasir við. Að hennar mati er nauðsynlegt að egna Bandaríkin, okkar nánasta bandamann sem sér um varnir landsins, til neikvæðra viðbragða – hvorki meira né minna. Er hægt að hugsa sér meiri öryggistryggingu en að Bandaríkin verji landið okkar og þar með sitt eigið land? Öllu þessu er Þorgerður reiðubúin að fórna til að erlent ríkjasamband nái að innlima Ísland. „Framhald aðildarviðræðna“ Útvarp allra landsmanna verður nú að standa vörð um sannleikann um „ framhald aðildarviðræðna “. Ég hef löngu gefist upp á að vona að fréttastofa Sýnar geri það fremur en RÚV. Frú Þorgerður Katrín er sá utanríkisráðherra sem Ísland síst mátti við á viðsjárverðustu tímum í næstum heila öld. Enginn þeirra, sem eru líklega hátt í þriðja tug, hver öðrum vandaðri, hefði fyrst ráðgast við erlent ríkjasamband um dagsetningu þjóðaratkvæðis um innlimun þess sama ríkjasambands á landinu okkar. – Ekki einn einasti. Einar S. Hálfdánarson hæstaréttarlögmaður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Haldið „svanvangs í för langa“ éljasaman útmánuðinn Vanbúið Schengen-áritanafrumvarp Málssókn á hendur Ísrael og framhald ESB-innlimunar Íslands „Ég er orðinn þreyttur á að fara í flugvél“ Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Ryksprenging í tómum tanki Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Stormur með dimmum éljum Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Rafmagni sló út á Vestfjörðum og högg kom á kerfið Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fólk er eðlilega í áfalli“ Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Nýjast á mbl.is » Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Haldið „svanvangs í för langa“ éljasaman útmánuðinn Vanbúið Schengen-áritanafrumvarp Málssókn á hendur Ísrael og framhald ESB-innlimunar Íslands „Ég er orðinn þreyttur á að fara í flugvél“ Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn sérstakur viðbúnaður hér Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð „Fólk er eðlilega í áfalli“ Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Rafmagni sló út á Vestfjörðum og högg kom á kerfið Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fólk er eðlilega í áfalli“ Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild

Share this article