Viðskipti | mbl | 19.3.2026 | 10:35 Framlegðarhlutur olíufélaga hækkað verulega Framlegðarhluturinn er skilgreindur sem mismunur á dæluverði bensíns, að frádregnum opinberum gjöldum, og heimsmarkaðsverði eldsneytis í krónum. Morgunblaðið/Kristinn Setja bókamerki Framlegðarhlutur olíufélaga hefur hækkað verulega frá árinu 2022 og aukist að raunvirði. Frá þessu greinir Alþýðusamband Íslands í tilkynningu og byggir á nýrri greiningu hagsviðs síns. Nær greiningin yfir tímabilið 2017 til 2026 og byggir á mánaðarmeðaltölum yfir lægsta verð olíufélaga hverju sinni. „Framlegðarhluturinn er skilgreindur sem mismunur á dæluverði bensíns, að frádregnum opinberum gjöldum, og heimsmarkaðsverði eldsneytis í krónum. Þannig má draga fram það sem stendur eftir milli heimsmarkaðsverðs og dæluverðs og gefur það skýra vísbendingu um hlut olíufélaga í bensínverði, sér í lagi þegar litið er til þróunar á föstu verðlagi,“ segir í tilkynningunni. Endurspegli samspil breytinga í verðlagi og gengi Segir ASÍ greininguna sýna að framlegðarhluturinn hafi verið tiltölulega lágur árin 2020 og 2021, eða á bilinu 20–30 krónur á lítra á föstu verðlagi. Frá árinu 2022 megi hins vegar greina skýra breytingu. „Á seinni hluta ársins jókst framlegðarhluturinn hratt og hefur síðan verið umfram langtímameðal (36,7 ISK), með tveimur undantekningum,“ segir svo. Stærstur hluti þeirrar miklu sveiflu sem í krónum talið megi sjá eftir 2022 endurspegli því samspil breytinga í verðlagi og gengi, en jafnframt segir ASÍ að greina megi raunaukningu í framlegð, sem haldist hafi yfir fyrra stigi. Þróun neytendum í hag „Þannig bendir þróunin til þess að framlegðin hafi ekki aðeins hækkað tímabundið heldur færst upp á hærra og varanlegra jafnvægisstig. Á síðustu mánuðum hefur framlegðarhluturinn þó lækkað frá þeim toppum sem sáust eftir 2022. Sú þróun er neytendum í hag og bendir til þess að bilið milli heimsmarkaðsverðs og dæluverðs hafi dregist saman,“ skrifar ASÍ. Þrátt fyrir þetta sé framlegðarhluturinn enn hærri en hann var almennt á árunum fyrir 2022 og telur ASÍ því ekki tilefni til að gefa afslátt af þeirri hækkun sem varð á tímabilinu í heild. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Mun Japönum fækka um helming á 40 árum? Sigurður Már Jónsson Ísland og Balkanlöndin á sama farrými inn í ESB Fleira áhugavert Tólf ákærðir fyrir skjalafals Átti að vera búið að loka byggingunni Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Staðan erfið og aðgerða þörf Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Greiðir 34,9 milljarða í arð Hafnar stjórnarsetu og hyggst einbeita sér að öðru Halda vöxtum óbreyttum „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu Átta gild framboð í stjórn Íslandsbanka Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Ráðinn sviðsstjóri hjá Olís „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Hafnar stjórnarsetu og hyggst einbeita sér að öðru Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Ráðinn sviðsstjóri hjá Olís Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Halda vöxtum óbreyttum Greiðir 34,9 milljarða í arð Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu Forsendur ekki til staðar hér á landi Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Sameinast undir vörumerki Apótekarans Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Forsendur ekki til staðar hér á landi Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Pistlar » Sigurður Már Jónsson Mun Japönum fækka um helming á 40 árum? Sigurður Már Jónsson Ísland og Balkanlöndin á sama farrými inn í ESB Fleira áhugavert Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði Horfði ekki bara til einnar skýrslu Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Greiðir 34,9 milljarða í arð Hafnar stjórnarsetu og hyggst einbeita sér að öðru Halda vöxtum óbreyttum „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu Átta gild framboð í stjórn Íslandsbanka Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Ráðinn sviðsstjóri hjá Olís „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Hafnar stjórnarsetu og hyggst einbeita sér að öðru Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Ráðinn sviðsstjóri hjá Olís Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Halda vöxtum óbreyttum Greiðir 34,9 milljarða í arð Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu Forsendur ekki til staðar hér á landi Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Sameinast undir vörumerki Apótekarans Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Forsendur ekki til staðar hér á landi Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur