Í erindi vegna þingsályktunartillögu um að Landhelgisgæslan hafi fasta starfsstöð á Akureyri fyrir eina af þyrlum sínum bendir flugfélagið Atlantsflug á að rekstur og viðhald slíkrar þyrlu sé kostnaðarsamt og bindi verulegt fjármagn í eina einingu. Atlantsflug segir að þyrla af gerðinni Super Puma H225 eins og Landhelgisgæslan sé með sé fyrst og fremst sérhæfð leitar- og björgunarþyrla og ekki hönnuð fyrir daglega bráðaþjónustu. Segir félagið þessa nálgun hafa verulega annmarka þegar horft sé til raunverulegra þarfa almennings fyrir bráðaþjónustu og vekur athygli á öðum kosti. Sérhæfð þjónusta í minni þyrlum „Þar er um að ræða uppbyggingu sérhæfðrar HEMS þjónustu með minni þyrlum á borð við Airbus Helicopters H135 eða H145, sérstaklega hannaðar fyrir bráðaþjónustu og sjúkraflutninga. Sama fjárhæð og talað er um í þingsályktunartillögunni gæti staðið undir rekstri fjögurra minni og sérhæfðra sjúkraþyrla, HEMS, staðsettra í mismunandi landshlutum,“ segir í erindi Atlantsflugs til allra sveitarfélaga á landinu þar sem vakin er athygli á málinu. Þyrlu LHG á Akureyri almennt fagnað í umsögnum Í þeim umsögnum sem bárust Alþingi vegna þingsályktunartillögu Njáls Trausta Friðbertssonar og fleiri þingmannna er því fagnað af mörgum mismunandi aðilum að ein þyrla LHG verði staðsett á Akureyri. „Það segir sig sjálft að með einni þyrlu á Akureyri sem væri mönnuð tveimur áhöfnum myndi öryggi bærði til lands og sjávar aukast verulega,“ segir Sjómannasamband Íslands til dæmis. Röng hugsun Jón Grétar Sigurðsson, framkvæmdastjóri og eigandi Atlantsflugs. MYND/AÐSEND Í samtali við Fiskifréttir undirstrikar Jón Grétar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Atlantsflugs, að tillögu félagsins sé ekki beint gegn Landhelgisgæslunni eða hagsmunum sjómanna. „Það er gríðarlegur munur á sjúkraflutningum eða leit og björgun. Það er að okkar mati röng hugsun að tala um að þyrla sem Landhelgisgæslan hefði á Akureyri kæmi inn sem sjúkraþyrla. Fyrir því liggur skýrsla frá 2017 frá neyðarlæknum og fleirum svo voru á þyrlunum,“ segir Jón Grétar og tekur fram að ábendingar Atlantsflugs séu á engan hátt settar fram í andstöðu við að Gæslan verði með þyrlu á Akureyri eða þess vegna á Egilsstöðum líka. „Sjúkraflutningar eru bara allt annað mál“ „Við skiljum þá sem eru úti á sjó hundrað prósent en ef kostnaður við það að setja þyrlu á Akureyri á að vera fimm milljarðar á ári og það á að leysa sjúkraflug með þeim hætti finnst mér það rangt. Ef það á að setja þyrlu á Akureyri fyrir leit og björgun höfum við ekkert út á það að setja. En það þarf að vera á þeim forsendum að það sé ekki verið að tala um að það leysi öll mál. Það er eins og að mæta á skriðdreka í hnífabardaga. Sjúkraflutningar eru bara allt annað mál,“ segir Jón. Útfærsluatriði hver reki þyrlurnar Að sögn Jóns hefur hann verið í flugrekstri í yfir þrjátíu ár og rekið flugvélar og þyrlur en sé í þessu máli ekki endilega að horfa á þetta í samhengi við sína starfsemi. „Við erum bara að benda á það sem er búið að ræða um; að það þurfi að verða breyting í þessum málum. Hvort að Gæslan myndi reka þessar HEMS-þyrlur eða einhverjir aðrir er bara útfærsluatriði.“