Ekki er gert ráð fyrir kostnaði vegna kjarasamninga starfsfólks hjúkrunarheimila í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma sem kynnt var í gær. Formaður Eflingar segir kostnaðinn hlaupa á hundruðum milljóna. Ráðherra segir ríkissjóð standa straum af kostnaði. Mönnun verður mikil áskorun Ríflega 1.500 ný hjúkrunarrými eiga að rísa fyrir árslok 2030, gangi ný framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma eftir. Samkvæmt áætluninni, sem Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra kynnti í gær, verður mönnun á þessum nýju rýmum gríðarstór og mikil áskorun. Hún sagði lausnina á vandanum meðal annars felast í því að hækka laun umönnunarstétta. Formaður Eflingar segir málið ekki svo einfalt. Hún fagnar þó umræðu um launahækkanir. Mönnun á 1.500 nýjum hjúkrunarrýmum verður áskorun og ráðherra vill hækka laun ummönnunarstétta. Formaður Eflingar segir málið ekki svo einfalt. „En þegar við fórum til dæmis í síðustu kjarasamningaviðræður vegna hjúkrunarheimila, þá voru það ekki launin sem voru fólki efst í huga heldur voru það starfsaðstæður.“ Sólveig Anna segir aðstæður starfsfólks hjúkrunarheimila vera meiri áskorun en launamál. „Það er oft á tíðum mikil undirmönnun, það er mikil veikindatíðni, há starfsmannavelta, nákvæmlega sömu vandamál og eru að plaga leikskólana hér í borginni. Þannig að ef það á að takast að fá allan þennan stóra hóp til starfa þá þarf að laga aðstæður inni á þessum vinnustöðum mjög mikið.“ Efling samdi sérstaklega við ríkið Efling sagði upp kjarasamningum við ríkið fyrir ári síðan vegna þess að skilyrði samningsins um bætta mönnun á hjúkrunarheimilum voru ekki uppfyllt. Til að leysa þá stöðu samdi ríkið við Eflingu um launahækkanir starfsfólks hjúkrunarheimila. Í nýrri framkvæmdaáætlun mennta- og barnamálaráðherra segir að kostnaður vegna þeirra hækkana, sé enn ófjármagnaður. „Ég held að kostnaðaraukinn við þær auka hækkanir hafi verið einhverjar nokkur hundruð milljónir á ári út samningstímann.“