Þó að það sé blíðviðri í dag hefur snjóað mikið á Tröllaskaga síðustu daga. Síðan á miðvikudag hefur mælst uppsöfnuð úrkoma á Siglufirði og Ólafsfirði, um og yfir 100 millimetrar. Í nótt eða seint í gærkvöldi féllu snjóflóð úr Selskál í Hvanneyrarhnjúki á Siglufjarðarveg skammt utan við bæinn, milli Strákaganga og Siglufjarðar. „Miðað við umfangið og breiddina á þessu er þetta allavega 150 metra breitt og 8-900 metra langt,“ segir Gestur Hansson snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði. „Þetta virðast vera tvö snjóflóð sem falla þarna. Seinna flóðið tvístrast hvort í sína áttina, fyrra flóðið stoppar á veginum og fer út í sjó,“ segir Gestur. Einn bær í Siglufirði hefur verið rýmdur á meðan óvissustig vegna snjóflóðahættu varir. Gestur telur að þykkt flóðsins sé allt að sjö metrar. Veginum var lokað í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu og lélegrar færðar og því enginn í hættu. „Ég er búinn að vera í nokkur ár hérna en þetta er í fyrsta skipti sem ég sé snjóflóð hérna niður. Við höfum fengið skriðu hérna niður í svipuðu formi og þetta,“ segir Gestur. „Þetta er með stærri flóðum sem ég hef mælt og séð,“ segir hann. Gul viðvörun tekur gildi í nótt og á morgun á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra með norðaustan hvassviðri og ofankomu. Hafiði einhverja mynd af næstu dögum, er áframhaldandi hætta? „Já, jafnvel. Hann er að snúast í norðaustan og allhvassa. Þannig jafnvel á þriðjudag, þá gætum við verið með viðvarandi fram að þeim tíma, sko. Það er sko hellingssnjór til, til að mynda þá bara veika fleka og við þurfum að hafa mjög góðan varann á,“ segir hann.