Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ríkisfjármálin kynt undir verðbólgu

Read Full Article →

Eins og þekkt er orðið má meðal annars rekja mikla aukningu verðbólgu á síðustu mánuðum til ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að hækka vörugjöld á ökutæki. Samhliða voru olíugjald og vörugjöld á eldsneyti lögð niður, kolefnisgjaldið hækkað, kílómetragjald tekið upp fyrir öll ökutæki og rafbílastyrkurinn lækkaður. Í markaðskönnun Viðskiptablaðsins voru markaðsaðilar beðnir um að taka afstöðu til þess hvort aðhaldsstig ríkisfjármálanna hefði stuðlað að minni eða meiri verðbólgu eða ekki haft áhrif á verðbólgu. Niðurstaðan er mjög afgerandi, en rúmlega 88% þátttakenda telja að aðhaldsstig ríkisfjármálanna hafi stuðlað að aukinni verðbólgu. Tæplega 12% þátttakenda telja að aðhaldsstig ríkisfjármálanna hafi ekki haft áhrif á verðbólgu og þar af leiðandi telur enginn það hafa stuðlað að minni verðbólgu. Sjá einnig Öll vötn falla til óbreyttra vaxta Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article