Trausti Hafliðason, ristjóri Viðskiptablaðsins, og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, voru gestir Kastljóssins í gær. Trausti sagði að tilkynning um sölu fjölmiðlahluta Sýnar hafi ekki komið honum á óvart. Reksturinn hafi verið fyrirtækinu þungur undanfarin ár og þá hafi fyrirtækið tapað 630 milljónum og tapið hefði verið meira ef fyrirtækið hefði ekki selt eignir. Aðspurður um það hvað olli þessum óförum Sýnar sagði Trausti ástæðurnar vera nokkrar. Hann segir að ákveðnar ákvarðanir stjórnar og stjórnenda Sýnar hafi vakið athygli, svo sem að skipta út vörumerkinu Stöð 2, sem væri rótgróið vörumerki, og taka þess í stað upp nafn Sýnar. Þá hafi verið hætt að rukka fyrir línulega dagskrá og við það hafi tekjur fyrirtækisins dregist saman. Sigríður Dögg sagði ákveðinn óvissutíma framundan, sér í lagi hvað varðar framtíð fréttastofu Sýnar og sjónvarpsfréttir stöðvarinnar. Síminn hafi þó mikil tækifæri til að styrkja fjölmiðlun á Íslandi enn frekar. Hún telur að stjórnendur Símans hefðu ekki keypt Vísi og Bylgjuna af Sýn ef ætlun þeirra væri að leggja fjölmiðlana niður. Þvert á móti sýni viðskiptin að það séu verðmæti í fjölmiðlum á Íslandi. Viðtal Kastljóss við Trausta og Sigríði má horfa á í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Ritstjóri Viðskiptablaðsins segir að tilkynning um sölu fjölmiðlahluta Sýnar hafi ekki komið honum á óvart. Ákveðnar ákvarðanir stjórnar og stjórnenda fyrirtækisins hafi vakið athygli, svo sem að skipta út rótgrónu vörumerki Stöðvar 2 fyrir Sýn.