Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í utanríkismálanefnd segja utanríkisráðherra ekki hafa staðið rétt að fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna að ESB. Ráðherra segir að þingmenn hafi vitað að málið yrði á dagskrá. Tekist var á um hvort utanríkisráðherra hefði staðið rétt að undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslunnar á fundi nefndarinnar í dag. „Ég óskaði eftir því að utanríkisráðherra kæmi á fund nefndarinnar áður en umræðan hæfist í þingsal til að eiga orðastað við nefndina. Við því var ekki orðið,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir sem á sæti í utanríkismálanefnd. Ósammála að lögbundið samráð þurfi til Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra þáði svo boð á fund utanríkismálanefndar í dag. „Í fyrsta lagi er ég ósammála því að þetta sé lögbundið samráð áður en maður leggur fram þingmál,“ sagði ráðherra að fundi loknum. „Af því að þetta á fyrst og fremst við þegar ákveðinn öryggisventill, þannig að ríkisstjórn taki ekki einhliða ákvarðanir í mikilvægum utanríkispólitískum málum.“ Stjórnarandstaðan segir að ekki hafi verið farið að þingskaparlögum þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB-aðildarviðræður var sett á dagskrá þingsins. Utanríkisráðherra segist ekki hafa þurft að hafa neitt samráð. Kanntu annan betri, spyr Sigmundur „Þær skýringar sem er búið að finna upp núna eru algerlega kostulegar,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Miðflokksins og fulltrúi í utanríkisnefnd. „Að þingsköp, 24. grein, eigi ekki við ef um þingmál sé að ræða. Kanntu annan betri?“ spyr þingmaðurinn. Í þeirri grein er kveðið á um að utanríkismálanefnd skuli vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál, enda skuli ríkisstjórnin ávallt bera undir hana slík mál. Utanríkisráðherra segir að nefndarmönnum hefði átt að vera fulljóst að málið yrði á dagskrá, til þess hefði verið margboðað. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í nefndinni segja að þjóðaratkvæðagreiðslan hafi aldrei verið rædd á fundum, „Staðreyndin er bara sú að þingmenn og nefndarmeðlimir í utanríkismálanefnd fréttu fyrst af fyrirhugaðri dagsetningu á þjóðaratkvæðagreiðslu í erlendum fjölmiðlum,“ segir Diljá Mist.