Magdalena Anna Torfadóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Hugbúnaðarhúss framtíðarinnar og verður samhliða ráðningunni meðeigandi í fyrirtækinu. Í tilkynningu segir að Magdalena muni sinna starfi fjármálastjóra samhliða sínu aðalstarfi en hún starfar sem sérfræðingur í uppgjörum hjá Löggiltum endurskoðendum. Magdalena er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja (MCF) frá Háskólanum í Reykjavík. Hún er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum og hefur setið námskeiðið Viðurkenndi bókarinn við Opna háskólann. Sjá einnig Íslenskt hugbúnaðarhús færir út kvíarnar í Evrópu „Ég er full tilhlökkunar að taka þátt í uppbyggingu Hugbúnaðarhúss framtíðarinnar. Þróunin á sviði gervigreindar og nýtingu hennar í rekstri er hröð um þessar mundir og því sífellt meiri þörf fyrir þá þjónustu og þær lausnir sem Hugbúnaðarhúsið býður upp á og er með í þróun,“ segir Magdalena. Magdalena hefur starfað mestallan sinn feril í viðskiptablaðamennsku en einnig á fjármálamarkaði. Hún hefur stýrt hlaðvarpinu Fjármálakastið um nokkurra ára skeið. Hún hefur einnig setið þó nokkur netnámskeið um nýtingu gervigreindar á sviði reksturs. „HBHF er að byggja framtíðina í hugbúnaði og með Magdalenu í hlutverki fjármálastjóra styrkjum við okkar stefnu og markmið um vöxt. Hún sameinar greiningarhæfni og strategíska hugsun á þann hátt sem mun hjálpa okkur að taka skýrari ákvarðanir við uppbyggingu fyrirtækisins. Ég er afar spenntur fyrir samstarfinu og því sem framundan er,“ segir Atli Már Guðfinnsson, framkvæmdastjóri Hugbúnaðarhúss framtíðarinnar.