Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kreppir að á tónleikamarkaði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 10.3.2026 | 23:40 Kreppir að á tónleikamarkaði Airwaves Sigrún á tónleikastaðnum Bird sem nú hefur verið lokað. Morgunblaðið/Eggert Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki „Menning og mannlíf er það sem gerir borgina spennandi. Þetta er því ekki góð staða,“ segir María Rut Reynis­dóttir framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar. Skortur á hentugu húsnæði til tónleikahalds í Reykjavík er enn og aftur til umræðu. Nýverið heltust tveir staðir í Naustunum úr lestinni; Bird og Gaukurinn. Árið 2023 lagðist Húrra af og þar með er ekkert líf eftir á þessum bletti sem lengi var ein helsta vin tónlistaráhugafólks. María Rut átti sæti í spretthópi sem falið var að skoða aðstöðumál lifandi tónlistarflutnings í Reykjavík, en tillögur hópsins voru kynntar á fundi menningar- og íþróttaráðs borgarinnar nýverið. María Rut hefur lengi fylgst með vandræðum í rekstri tónleikastaða í miðborginni og segir að þörf sé á inngripi borgaryfirvalda til að lyfta tónlistarmenningunni á sinn fyrri stall. „Það sem við lögðum mesta áherslu á í þessum hópi var að leggja fram konkret tillögur sem væri einfalt fyrir Reykjavíkurborg að framkvæma. Mikil­vægt fyrsta skref væri viðurkenning borgarinnar á mikilvægi tónleikastaða. Ég hef fundið fyrir því í mínum störfum að viðhorf margra er að þetta séu barir og búllur en ekki tónleikastaðir. Ég þreytist ekki á að segja að það byrjar enginn í Hörpu. Við þurfum staði fyrir allar tegundir tónlistar, allt frá kjöllurum upp í Hörpu,“ segir hún. Kerfislægur rekstrarvandi Í greinargerð hópsins sem Ása Dýradóttir, verkefnastjóri Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur, tók saman kemur fram að um 20 tónleikastaðir séu í Reykjavík. Miklar breytingar hafa orðið frá úttekt sem gerð var 2017 og hefur stór hluti þeirra smærri tónleikastaða sem þá voru starfræktir lagt upp laupana. „Lifandi tónleikahald í miðborg Reykjavíkur hefur á síðasta áratug færst frá sviðum smærri tónleikastaða (með áheyrendafjölda milli 100-250) yfir í rými sem byggja starfsemi sína á öðrum rekstri, sbr. plötubúðir, kaffihús, bíósali o.fl.,“ segir í greinargerðinni. María Rut Reynisdóttir. Ljósmynd/Sunna Ben Þá segir að tónleikastaðir standi frammi fyrir kerfislægum rekstrarvanda. Tónleikahald sé ekki sjálfbært fjárhagslega og því sé víða haldið uppi með tekjum af veitingasölu en það sé ótryggur rekstrargrundvöllur. Mikil þörf sé á úrbótum á þeim stöðum sem þó starfi enn, svo sem á hljóð- og ljósakerfum, sviðum og aðgengismálum. Þá sé hár kostnaður að sliga marga rekstraraðila. Þeim skilaboðum er beint til Reykjavíkurborgar að leyfiskostnaður sé hár og éti upp mögulegan hagnað. „Leyfismálin virðast alltaf vera of flókin og jafnvel kostnaðarsöm. Við spyrjum hvort ekki sé hægt að fara í vinnu með stöðunum til að einfalda leyfismálin. Eins leggjum við til að gefið verði út eitt leyfi fyrir stóra viðburði á ­sumrin,“ segir María Rut. Hún bætir við að tímabært sé að endurvekja úrbótasjóð tónleikastaða sem var starfræktur í þrjú ár, 2020-2022, en þar gátu tónleikahaldarar sótt um styrki til að bæta aðstöðu sína. „Við myndum gjarnan vilja sjá þennan sjóð aftur og gera hann stærri og öflugri,“ segir hún en nýstofnaður Tónlistarsjóður styður þegar við tónleikastaði. Í tónlistarstefnu ríkisins sem samþykkt var árið 2023 er vikið að því að hlúa þurfi að umhverfi tónleikastaða. „Þarf að auðvelda minni tónleikastöðum að koma sér upp aðstöðu fyrir lifandi flutning, s.s. hljóðkerfi, ljósum, sviði og aðstöðu baksviðs, svo og aðgengi fyrir fatlaða,“ segir þar meðal annars. Frétt af mbl.is Menningu er bolað út á jaðarinn Grasrótin orðin heimilislaus Hugur er í fólki í bransanum og ríkur vilji til að bæta ástandið. Af þessum sökum hafa verið stofnuð Samtök smærri tónleikastaða og formaður þeirra er Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams frá Prikinu en í stjórn sitja einnig fulltrúar frá Hannesarholti, Mengi, 12 Tónum og Dillon. Ekki er vanþörf á að eitthvað gerist, ef marka má þær afleiðingar sem eru sagðar verða af núverandi stöðu í áðurnefndri greinargerð. Grasrót og miðbik tónlistargeirans eru orðin heimilislaus, núverandi þróun er sögð stefna í átt að tónlistarlegu eyðilandi í miðbænum og nýjar hljómsveitir og listafólk eiga sífellt erfiðara með að stíga sín fyrstu skref. „Aðgerðaleysi gagnvart núverandi stöðu gæti komið í veg fyrir framþróun tónlistarfólks og skapað stór kynslóðaskil í íslensku tónlistarlífi,“ segir þar. Frétt af mbl.is Ferðaþjónustan gleypti íslensku tónlistarsenuna Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Grönduðu írönskum bátum við Hormússund Kreppir að á tónleikamarkaði Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Hver var maðurinn í blautbúningum? Lindsey Vonn notast við óhefðbundinn ferðamáta Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telja sig vita orsök stórbrunans Hart sótt að Kristrúnu Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Grönduðu írönskum bátum við Hormússund Kreppir að á tónleikamarkaði Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Hver var maðurinn í blautbúningum? Lindsey Vonn notast við óhefðbundinn ferðamáta Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Fleiri muni fara á örorku Skólastjórinn hættir alfarið Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni

Share this article