Þjófnaður úr dósagámum Grænna skáta nemur hátt í tólf milljónum á ári. Lásarnir eru skornir í sundur með slípirokkum og lögregla hefur fundið fólk í gámunum. Fólk notar sérsmíðuð áhöld og slípirokka til að komast inn í dósagáma Grænna skáta og stela úr þeim. Lögregla finnur fólk í gámunum og þjófnaðurinn nemur milljón á mánuði Grænir skátar eiga og reka um 260 söfnunargáma fyrir drykkjarumbúðir víða um land og ágóðinn rennur til skátastarfs og björgunarsveita. Þá eru Grænir skátar stærsti vinnustaðurinn í Reykjavík fyrir fólk með skerta starfsgetu og starfsemin er mikilvæg á margan hátt. En ekki skilar sér allt úr gámunum til góðra málefna. Skátarnir verða af milljón á mánuði „Við erum að áætla að um 8-10% af heildarinnkomunni okkar sé stolið,“ segir Jón Ingvar Bragason framkvæmdastjóri Grænna skáta. Og það er hátt í ein milljón á mánuði. Í bígerð er að skipta gámunum út fyrir aðra sem erfiðara er að brjótast inn í, en það kostar mikið og tekur tíma. Gaffall, límband og trjágrein Grænir skátar hafa ekki bolmagn til að hafa eftirlit með gámunum. Þeir eru oft staðsettir á grenndarstöðvum Sorpu sem ætlar að setja þar eftirlitsmyndavélar og skátarnir munu njóta góðs af því. Ýmsum brögðum er beitt til að ná innihaldinu úr gámunum og fundist hafa áhöld til þess ætluð í og við gámana. Eitt þeirra er útbúið úr bognum gaffli, sem var festur með límbandi á trjágrein og það svo notað til að veiða dósirnar og flöskurnar úr gámunum. Slípirokk beitt í skjóli nætur Ýmsu öðru er beitt til að komast að innihaldi gámanna, að sögn Jóns Ingvars sem segir að allnokkur brögð séu að því að lásar gámanna séu sagaðir í sundur með slípirokk. „Það er aðgerð sem tekur talsverðan tíma, það eru mjög öflugir lásar á gámunum. Enda er þetta yfirleitt gert um miðja nótt,“ segir Jón Ingvar. Þetta gerist oft. Síðan í september hafa lásar gámanna að meðaltali verið sagaðir í sundur 12-15 sinnum í mánuði. Kostnaðurinn er talsverður því hver lás kostar um 20.000 krónur. Fólki velt ofan í gámana og látið henda út dósum og flöskum Aðferðirnar eru fleiri, að sögn Jóns Ingvars. „Á síðasta ári tók lögreglan einstakling sem var ofan í gámnum. Þá velta þeir einum einstaklingi ofan í gáminn og viðkomandi tínir upp og hendir út einingunum. Það eru yfirleitt 2-3 einstaklingar sem eru að stunda þetta saman.“ Eru þetta börn? „Allavegana mjög nettur einstaklingur. Lítill.“ Hvernig var það í þessu tilviki? Barn eða fullorðinn? „Kona. Þetta var lítil kona.“ Það mál var kært, en síðan fellt niður, segir Jón Ingvar sem segir að Grænir skátar hafi bæði tilkynnt og kært dósaþjófnað til lögregu allnokkrum sinnum og það hafi allt verið fellt niður. Stórfelldur dósaþjófnaður í Grímsnesi Í vikunni kærðu Grænir skátar fólk fyrir dósaþjófnað úr gámum í Grímsnesi, en athæfið náðist á upptöku. „Þessir einstaklingar eru búnir að stela á bilinu 3-4 milljónum á síðastliðnu ári,“ segir Jón Ingvar.