Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sigmundur Davíð sagði Þorgerði fara á bak við þjóðina varðandi aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið

Read Full Article →

Til snarpra orðaskipta kom í Silfri gærkvöldsins þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins staðhæfði að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði verið að véla um inngöngu Íslands í Evrópusambandið á nokkrum fundum í Brussel. Sigmundur sagði allt sem ríkisstjórnin hefði gert bendi til að þjóðinni sé ekki treyst. Þorgerður þvertók fyrir það. „Hvers vegna varstu að plotta með samherjum þínum í Brussel mánuð eftir mánuð eftir mánuð?“ spurði Sigmundur. Þá spurði Þorgerður á móti hvað Sigmundur væri að saka hana um. „Hvað ertu að saka mig um? Hvað ertu að saka mig um? Ertu að saka mig um að fara á bak við íslensku þjóðina? Ertu að segja það?“ „Að fara á bakvið nei, ég er ekki að segja svíkja hana en fara á bak við hana, já.“ Þá sagði Þorgerður einfaldlega nei. Sigmundur sagði ríkisstjórnina ekki veita almenningi réttar upplýsingar varðandi fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Hún þyrði ekki að spyrja landsmenn heiðarlegra spurninga og verið væri að villa um fyrir fólki. Þorgerður sagði fullyrðingar Sigmundar fáránlegar og þær stæðust enga skoðun. „Ég hef ekki svikið loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu eins og þú,“ sagði Þorgerður. „En þú hefur farið á bak við þjóðina því þú hefur ekki upplýst utanríkismálanefnd, hvað þá þjóðina og almenning um það sem þú ert búin að vera að bauka í Brussel,“ sagði Sigmundur þá. „Við heyrðum fyrst af þessu í erlendum fjölmiðlum sem fengu upplýsingar frá heimildarmönnum sínum í skrifstofunum í Brussel.“ Sigmundur kvaðst loks ekki vera að saka Þorgerði um sviksemi, hún væri að vinna að sínum markmiðum sem honum þættu óheppileg fyrir hagsmuni Íslands. Umræðan heldur áfram í þinginu í dag Ríkisstjórnin stefnir á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB í sumarlok. Hart var tekist á um Evrópumálin á þinginu í gær við upphaf fyrstu umræðu um þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Stjórnarandstaðan sagði meðal annars utanríkisráðherra hefði brotið þingskaparlög með því að hafa ekki kynnt utanríkismálanefnd tillögu sína í gærmorgun. Fyrri umræðu verður haldið áfram þegar þingfundur hefst í dag klukkan 13:30. Fulltrúar allra flokka á þingi mættu í Silfrið í gærkvöld. Auk Þorgerðar Katrínar og Sigmundar Davíðs ræddu þau Guðrún Hafsteinsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu og Evrópumálin. Upptöku af þættinum má sjá hér fyrir neðan. Til nokkuð snarpra orðaskipta kom milli formanns Miðflokksins og utanríkisráðherra í Silfrinu í gærkvöldi, þar sem hann staðhæfði að hún hefði farið á bak við þjóðina og vélað um inngöngu Íslands í ESB á fundum í Brussel.

Share this article