Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Ég vildi sýna hvernig barni líður við þessar aðstæður“

Read Full Article →

Nanna Rögnvaldardóttir er hvað þekktust fyrir matreiðslubækur en hefur síðustu ár rutt sér til rúms með skáldsögum. Í fyrra kom út hennar fyrsta barnabók, Flóttinn á norðurhjarann, sem hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. Bókin fjallar um flótta mæðgna um kaldan vetur eftir móðuharðindin. Ekki tilbúin að setjast í helgan stein á eftirlaunaárunum Þegar Nanna fór á eftirlaun vissi hún að hana langaði ekki bara til að spila og prjóna. Hana langaði að skrifa en vissi ekki alveg hvað. Hún byrjaði að skrifa sögu formóður sinnar sem átti merkilega ævi. Upphaflega átti sagan ekki að vera skáldsaga en varð það að lokum. Og þá fannst mér þetta svo gaman að ég ákvað að halda bara áfram að skrifa skáldsögur.“ Fyrsta skáldsaga Nönnu var Valskan, svo komu glæpasögurnar Þegar sannleikurinn sefur og Mín er hefndin um Bergþóru í Hvömmum. Þriðja bókin um hana er væntanleg fyrir jól. Í miðjum þríleiknum síðasta haust kom út barnabókin Flóttinn á norðurhjarann. Tilviljun hvernig bókin varð til Í Völskunni fjallar Nanna um móðuharðindin og seinna meir fór hún að kynna sér hvar formæður hennar voru á þeim tíma. Þá rakst hún á sögu tólf ára stúlku sem bjó hjá föður sínum í Naustavík í Þingeyjarsýslu. Hann er þekktur fyrir að hafa bjargað fólki í móðuharðindunum. „Upphaflega ætlaði ég reyndar ekki að skrifa barnabók, heldur fullorðinsbók. En ég var samt varla byrjuð þegar ég ákvað að segja þessa sögu út frá sjónarhóli barnsins.“ Stór hluti þeirra sem átti erfitt á þessum tíma var börn og því var viðeigandi fyrir söguna að vera barnabók. „Ég vildi sýna hvernig barni líður við þessar aðstæður.“ Aðspurð hverju það breyti fyrir söguna að vera sögð út frá barni frekar en fullorðnum segir Nanna að börn hugsi og sjái hlutina öðruvísi. Auk þess þarf barnið að treysta á móður sína og góðmennsku annarra. Þó að móðir aðalpersónu sögunnar vilji ekki segja hvert þær séu að flýja, treystir dóttirin á hana. Mér fannst það svo mikilvægt að börnin, þau ættu einhverja von.“ Var á leið á matarráðstefnu þegar henni var tilkynnt um sigurinn Bókin vann Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í fyrra. Nanna var stödd í Oxford á leið á matarráðstefnu þegar henni var tilkynnt að hún hefði hlotið verðlaunin. Hún minnist þess að hafa orðið bæði glöð og hissa. „Ég vissi að þetta væri sem sagt erfið bók og ekki fyrir alla og ég vissi ekkert hvernig svoleiðis bók yrði tekið. En dómnefndin var ánægð með hana allavega.“ Kynntist Guðrúnu við störfin hjá Iðunni Nanna starfaði sem ritstjóri hjá bókaútgáfunni Iðunni þegar Guðrún Helgadóttir gaf út bækurnar sínar þar. Nanna las sumar þeirra yfir og skrifaði jafnvel baksíðutexta. Þannig kynntist hún Guðrúnu ágætlega. Hún lýsir henni sem höfundi sem hafði sínar skoðanir, gat jafnvel verið ósveigjanleg en hafði oftast rétt fyrir sér. „Mér þótti mjög vænt um að fá þessi verðlaun sem voru kennd við hana.“ Bókin Flóttinn á norðurhjarann eftir Nönnu Rögnvaldardóttur fjallar um flótta mæðgna eftir móðuharðindin. Hún segir það hafa verið snúið að ákveða hvað ætti heima í barnabók og hvað ekki. Rætt var við Nönnu Rögnvaldardóttur í Hvað ertu að lesa? á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article