Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fleiri en einn hafa stöðu sakbornings við rannsókn á kynferðisbroti á Akureyri Ásta Hlín Magnúsdóttir Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot sem framið var aðfaranótt sunnudags. DV greinir frá og segir brotin hafa verið framin á hóteli í miðbæ Akureyrar. Skarphéðinn Aðalsteinsson, yfirmaður rannsóknardeildar, staðfestir í samtali við fréttastofu að lögreglan hafi málið til rannsóknar og að fleiri en einn hafi stöðu sakbornings vegna rannsóknarinnar. Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar meint brot. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nýtt bæjarmálafélag býður fram í Bolungarvík Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Nýtt bæjarmálafélag, Betri Bolungarvík, hefur hafið undirbúning framboðs fyrir sveitarstjórnarkosningar. Á stofnfundi í síðustu viku var Þorsteinn Másson kosinn formaður félagsins og með honum í stjórn Hulda Birna Albertsdóttir og Guðmundur Kristinn Albertsson. Á vef félagsins segir að framboðið sé sprottið af vilja íbúa til að taka virkan þátt í mótun samfélagsins. Í frétt Bæjarins besta segir að framboðið sé án tengsla við stjórnmálaflokka. Baldur Smári Einarsson var fundarstjóri á stofnfundi Betri Bolungarvíkur. Hann sat í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn samfleytt í 17 ár, allt til 2023. Fyrir 36 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Stoltenberg: Efnahagur Noregs njóti ekki góðs af stríðsátökum Þrátt fyrir ágætishorfur í norsku efnahagslífi boða stjórnvöld niðurskurð. Margvíslegar áskoranir séu fram undan sem kalli á ábyrga stjórn ríkisfjármála. Fjármálaráðherra segir ekkert til í því að Noregur njóti góðs af stríðsátökum í Mið-Austurlöndum Fyrir 48 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Enn óvissa um hjúkrunarrými hjá Klíníkinni en Urðarhvarf á áætlun Skýrst gæti á næstu dögum hvort samningar um hjúkrunarrými hjá Klíníkinni náist. Stefnt er að opnun nýrra hjúkrunarrýma í Urðarhvarfi í lok næstu viku. Formaður Félags bráðalækna býst við að finna fyrir áhrifum aðgerða með vorinu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Störfum fjölgar hratt í gagnaversiðnaði Tekjur aukast og störfum fjölgar verulega í gagnaversiðnaði hér á landi. Formaður Samtaka gagnavera segir stjórnvöld þurfa að marka skýra stefnu um atvinnugreinina. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Cell7 fer í djúpköfun Cell7 sendi frá sér sína þriðju sólóplötu, Deep Cuts, í lok október í fyrra en hún hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi frá því hún steig sín fyrstu skref sem rappari á síðustu öld. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti „Númer eitt þá væri ég náttúrulega til í að hafa þjóðarhöll“ Snorri Steinn Guðjónsson opinberaði í dag leikmannahópinn sem mætir Svíþjóð 19. og 21. mars. Leikirnir fara fram á Hlíðarenda og Kaplakrika þar sem Laugardalshöll var upptekin. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Kjóstu þitt uppáhalds Bubba-lag RÚV fagnar sjötugsafmæli Bubba Morthens með sjónvarpsþáttum um bestu lög tónlistarmannsins. Þjóðinni gefst færi á að kjósa sín uppáhalds Bubba-lög sem tekin verða fyrir í þáttunum. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Uppistandið vökvar sálartetur Pétur Jóhanns Grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon er með mörg járn í eldinum en gefur sér alltaf tíma til að stökkva á svið með uppistand. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Stjórnarandstaðan sakar utanríkisráðherra um brot á þingskaparlögum Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er eina málið á dagskrá þingfundar í dag. Þingfundur hefst klukkan 15:00. Búist er við löngum fundi og segja þingmenn mörgum spurningum ósvarað. Líklegt þykir að umræður klárist ekki fyrr en á morgun. Samkvæmt dagskrá ættu umræður um þjóðaratkvæðagreiðsluna að hefjast klukkan 15:30. Forsætis- og utanríkisráðherra eru til svara í óundirbúnum fyrirspurnartíma og verður eflaust fjallað um ESB þar áður en sjálf umræðan um tillöguna hefst. Stefnt er að þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Stjórnarandstaðan segir utanríkisráðherra hafa brotið þingskaparlög með því að hafa ekki komið fyrir utanríkismálanefnd í morgun til að kynna þingsályktunartillögu sína. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Lóan mætt á Eyrarbakka Lóan er komin til landsins eftir vetrarsetu í hlýrra loftslagi. Ólöf Helga Haraldsdóttir sá til lóunnar á vappi við Eyrarbakkafjöru. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Unnsteinn gæðablóð bergnuminn Unnsteinn Manuel Stefánsson frumflutti lagið Bergnuminn í Vikunni með Gísla Marteini. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Netverslanir á landsbyggð kalla eftir samkeppni í póstflutningum Netverslanir og smáframleiðendur á landsbyggðinni vilja fá aukna samkeppni í póstflutningum. Dropp skoðar nú að fjölga móttökustöðvum og er nú hægt að senda vörur frá þremur stöðum á Norðurlandi. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Króatía Fjallaði um reynslu Króata af inngöngu í ESB og upptöku evrunnar Boris Vujčić, yfirmaður Seðlabanka Króatíu segir að reynsla Króata af inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evrunnar hafi haft jákvæð áhrif. Vujčić fjallaði um þetta á fyrirlestri sem Seðlabanki Íslands stóð fyrir í síðustu viku. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Birta myndir af grunuðum sprengjuvargi við bandaríska sendiráðið Einn er grunaður um að hafa komið fyrir sprengju við sendiráð Bandaríkjanna í Ósló sem sprakk aðfaranótt sunnudags. Lögreglan hefur birt mynd af hinum grunaða. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Niðurrif hafið á íbúðarhúsum í Grindavík Verktakar byrjuðu í morgun að rífa íbúðarhús sem höfðu verið úrskurðuð ónýt eftir jarðhræringarnar í Grindavík. Rífa á að minnsta kosti 40 íbúðarhús í bænum sem hafa verið úrskurðuð ónýt vegna jarðhræringa. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Borgaraþjónustan hefur flogið 41 Íslendingi frá áhrifasvæði átaka í Mið-Austurlöndum Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur verið í sambandi við 218 íslenska ríkisborgara í Miðausturlöndum síðan átök brutust út í heimshlutanum. Þegar hafa 120 Íslendingar yfirgefið heimshlutann. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Enginn Ómar gegn Svíum — Æfingaleikir við Egypta í maí og janúar Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti í dag landsliðshópinn fyrir æfingaleikina gegn Svíum í næstu viku. Samhliða því var dagskrá landsliðsins fram að HM í janúar tilkynnt en liðið mun spila æfingaleiki við Egypta bæði í maí og janúar. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Ferðalög Ferðast peningalaus um heiminn með gítarinn að vopni Chanwoo Jeong, eða Noah eins og hann kallar sig, er 26 ára og hefur verið á ferðalagi frá því hann útskrifaðist úr háskóla fyrir einu og hálfu ári. Peningaveskið skildi hann eftir hjá vini sínum í Singapúr og því ferðast hann peningalaus. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál G7 ríkin skoða að ganga á olíusjóði vegna hækkandi verðs G7-ríkin funda klukkan hálf eitt í dag um möguleikann á að grípa til sameiginlegra neyðarbirgða olíu vegna síhækkandi heimsmarkaðsverðs. Hráolíuverð er komið yfir 100 dali á tunnuna, í fyrsta skipti síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu 2022. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Birgitta Líf færir sig um set hjá World Class Ásrún Aldís Hreinsdóttir Birgitta Líf starfaði áður sem markaðsstjóri World Class World Class Birgitta Líf Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs World Class og Lauga Spa. Viðskiptablaðið greinir frá. Í síðustu viku var tilkynnt að Birgitta myndi láta af störfum sem markaðsstjóri fyrirtækisins. Anna Bergmann tók við af Birgittu, hún hefur starfað sem markaðsstjóri Slippfélagsins í þrjú ár. Birgitta Líf hefur um árabil starfað hjá World Class. Foreldrar Birgittu eru eigendur fyrirtækisins. Í frétt Viðskiptablaðsins segir að breytingin sé liður í þróun starfseminnar og áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins. Birgitta Líf er með BA-gráðu í lögfræði og meistarapróf í alþjóðaviðskiptum. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Týnda kynslóðin árið 2026 Lag Bjartmars Guðlaugssonar um týndu kynslóðina, sem sló í gegn fyrir næstum fjörutíu árum, birtist í nýjum búningi í Vikunni. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Eurovision Ísraelska ríkissjónvarpið kvartar yfir ummælum sænska Eurovision-farans Keppandi Svía í Eurovision segir að Ísraelum ætti að vera meinuð þátttaka í keppninni. Forsvarsmenn ísraelska ríkissjónvarpsins telja ummælin brjóta í bága við reglur keppninnar og hafa sent kvörtun til EBU. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Imamoglu fyrir dómi nærri ári eftir handtöku Réttarhöld hefjast í dag yfir borgarstjóra Istanbúl, sem setið hefur í fangelsi í tæpt ár. Hann er vera líklegastur til að sigra forseta landsins og var handtekinn sama dag og tilkynnt var að hann yrði frambjóðandi stjórnarandstöðunnar. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Drónar og gervigreind berjast gegn illgresi Unnið er að nýrri tækni sem ætluð er til þess að aðstoða breska bændur við að greina og skanna illgresi á ökrum sínum. Baráttan við illgresi getur reynst erfið en með tilkomu tækninnar er vonast til þess að hægt sé að forðast stórfellda efnaúðun. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Ný farþegamiðstöð fær nafnið Vör Grétar Þór Sigurðsson Vör tekur á móti fyrstu farþegum skemmtiferðaskipa í vor. Húsið nýtist einnig sem veislusalur utan annatíma í komum skemmtiferðaskipa. Aðsent / Faxaflóahafnir Ný miðstöð fyrir farþega skemmtiferðaskipa við Viðeyjarsund hefur hlotið nafnið Vör. Í tilkynningu Faxaflóahafna segir að aldrei hafi fleiri tekið þátt í nafnasamkeppni hér á landi. 3.384 manns tóku þátt og sendu inn rúmlega 6 þúsund tillögur. Dómnefnd hafði það meðal annars að leiðarljósi við val á nafninu að það væri þjált, félli vel að íslenskri málhefð og væri